Er reglugerðin tilbúin? Aðalsteinn Snorrason skrifar 13. desember 2012 06:00 Talsverðar umræður hafa átt sér stað upp á síðkastið vegna nýrrar byggingarreglugerðar. Mikil vinna hefur verið lögð í verkefnið og er hún langt komin en engan veginn lokið. Að skrifa nýja byggingarreglugerð af þeim metnaði sem hér er að finna er mikið og þarft verk og gerir miklar kröfur til þeirra er að málinu standa. Sem betur fer hafa hæfir menn valist til verksins og er mikið og gott starf í gangi. Það sem hins vegar skortir á er að mönnum sé gefinn nægur tími til að klára viðfangsefnið því mikil ábyrgð fylgir því að innleiða nýjungar á þessu sviði. Ný byggingalög tóku gildi þann 1. janúar 2011, „Lög um mannvirki, nr. 160 28. desember 2010“. Reglugerðin til að framfylgja lögunum var hins vegar óunnin og tók ný byggingarreglugerð gildi þann 8. febrúar 2012, „Byggingarreglugerð nr. 112/2012“. Útfærsla reglugerðarinnar byggir á leiðbeiningarblöðum Mannvirkjastofnunar og enda fjölmargar greinar reglugerðarinnar á orðunum „Mannvirkjastofnun skal gefa út leiðbeiningar um framkvæmd þessarar greinar“. Leiðbeiningarblöðin til að framfylgja reglugerðinni þurfa alls að vera 120 og þegar er búið að gefa út 50 þeirra. Að lokum þarf að lesa saman reglugerðargögnin og eyða ósamræmi sem kann að hafa komið upp milli hinna mismunandi ákvæða í reglugerðinni og leiðbeininga vegna þeirra. Af þessum sökum er bráðabirgðaákvæði í gildi sem gefur kost á að miða við ákvæði eldri reglugerðar og rennur það út um næstu áramót.Staða reglugerðarinnar Föstudaginn 23. nóvember var haldinn fundur á Grand Hóteli undir yfirskriftinni „Samstarf lykill að árangri“ og verður það ekki dregið í efa. Frummælendur voru þeir Friðrik Ágúst Ólafsson, forstöðumaður Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins, Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar, Jóhannes Þórðarson, arkitekt FAÍ, og Magnús Sædal, formaður félags byggingafulltrúa og fyrrverandi byggingafulltrúi í Reykjavík. Skemmst er frá því að segja að ekki var annað að sjá en að enn ættu menn langt í land með að klára þá miklu og góðu vinnu sem hér er í gangi. Verður vart annað séð en að ósk Samtaka iðnaðarins og annarra sem eiga hagsmuni af framgangi byggingariðnaðarins um framlengingu á bráðabirgðaákvæði sem gefur kost á að byggja eftir eldri reglugerð, sé óumflýjanleg.Óheppileg tímasetning Nú er ekki bara það til að taka að ný reglugerð sé ekki tilbúin heldur eru fleiri rök sem hníga að því að skynsamlegt sé að fresta innleiðingu og jafnvel að taka hana í einhverjum skrefum. Byggingariðnaðurinn er í sögulegu lágmarki og íbúðabyggingar fóru niður fyrir það sem sást í kreppunni miklu um 1930 í Reykjavík. Því lengur sem byggingarmarkaðurinn er frosinn, því meiri líkur eru á byggingarsprengju eftir að hann loks tekur við sér. Því er tímasetning innleiðingar á nýrri byggingarreglugerð ekki skynsamleg sé horft til þessa þar sem augljós kostnaðarauki fylgir innleiðingu hennar. Taldir eru upp þeir þættir sem meðal annars hafa orsakað stöðnun markaðarins frá árinu 2008: Ÿ Kaupmáttur hefur almennt rýrnað. Ÿ Lóðarverð hefur staðið í stað en markaðsverð íbúða hefur lækkað. Sveitarfélög eiga erfitt með að lækka lóðarverð sökum sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, og reglugerðar 502/2012 um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Ÿ Krafa um eigið fé hefur aukist frá því að vera 0-10% upp í um 30%. Ÿ Fjármagnskostnaður hefur hækkað. Þetta eru þættir sem þegar blasa við og verður ekki hjá vikist á einfaldan hátt. Ákvörðun um að innleiða nýja byggingarreglugerð í skynsamlegum áföngum er hins vegar ákvörðun sem hægt er að taka og með því gæfist ómetanlegur tími fyrir þá sem að verkefninu vinna að ljúka því góða starfi og sannreyna ákvæði reglugerðarinnar og kostnaðarmeta. Heppilegur tími gæti verið að innleiða nýja reglugerð í áföngum á tveimur til fimm árum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar