Aron: Stefán Rafn er tilbúinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 11. desember 2012 06:45 Stefán leikur sinn fyrsta leik með ljónunum á morgun. þá mætir liðið magdeburg í bikarnum. fréttablaðið/vilhelm
Besti leikmaður N1-deildarinnar það sem af er vetri, Haukamaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson, spilar ekki meira með liðinu. Hann er nefnilega á förum til þýska stórliðsins Rhein-Neckar Löwen sem Guðmundur Guðmundsson, fyrrum landsliðsþjálfari, þjálfar. Hornamaður liðsins, Uwe Gensheimer, er illa meiddur og spilar líklega ekki meira á þessari leiktíð. Stefán Rafn hefur tekið stórstígum framförum undir stjórn Arons Kristjánssonar hjá Haukum og fær nú frábært tækifæri til þess að sanna sig með þeim bestu. „Hann fór út á laugardag. Æfði með þeim á sunnudag og er núna búinn að semja. Þetta gekk ótrúlega hratt fyrir sig," sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka og landsliðsþjálfari Íslands, en Stefán Rafn mun spila sinn fyrsta leik fyrir félagið í bikarkeppninni á morgun. „Strákurinn er tilbúinn í þetta. Hann er búinn að bæta sig gríðarlega mikið. Sérstaklega með skotin í horninu," sagði Aron en Stefán hefur meira og minna leikið í stöðu skyttu síðustu tvö ár en Aron ákvað að setja hann í hornið í vetur. „Það hjálpaði honum mikið og hann hefur tekið miklum framförum á sínum tíma. Hann getur líka skotið fyrir utan og er þess utan fínn varnarmaður. Hann er ekki ósvipuð týpa og Guðjón Valur að því leyti. Er mjög fjölhæfur. Ég taldi að hann ætti besta möguleika að ná árangri sem hornamaður og því setti ég hann þar núna." Þessar stórstígu framfarir leikmannsins hafa komið mörgum á óvart. „Hann er mjög duglegur og eljusamur. Hann tekur leiðsögn vel og hefur rétt viðhorf. Það skiptir máli. Hann hefur þroskast mikið í vetur, innan sem utan vallar. Nú er hann kominn í atvinnumennskuna. Nú þarf hann að sýna og sanna að hann eigi heima þar." Stefán er annar ungi og upprennandi leikmaðurinn í vetur sem fer úr N1-deildinni til stórliðs í Þýskalandi. FH-ingurinn Ólafur Gústafsson samdi við Flensburg þegar Arnór Atlason meiddist. Þessir strákar fá nú ómetanlega reynslu og það kætir landsliðsþjálfarann Aron. „Þetta er frábært fyrir íslenskan handbolta. Að 22 ára gömlum strákum sé treyst fyrir erfiðum verkefnum. Þetta gleður landsliðsþjálfarann mikið. Þeir munu vaxa með þessu enda að fara út til þess að spila. Það skiptir miklu máli."
Mest lesið Svíþjóð - Ísland | Allt undir á útivelli Handbolti „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Í beinni: Arsenal - Manchester United | Stórveldi slást um stigin þrjú Enski boltinn Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Með hendur fyrir aftan bak í fimm hundruð metra hæð Sport Fleiri fréttir Fram sótti sigur fyrir norðan og ÍR endaði langa taphrinu Slóvenar unnu upp fjögurra marka forskot Ungverja og fögnuðu sigri Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö Svíþjóð - Ísland | Allt undir á útivelli „Vantar meiri leiðindi og fávitaskap frá okkur“ „Miklu betra lið en Króatía“ Norðmenn með flautuna í Malmö „Hann er örugglega góður pabbi“ „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna „Eitt besta lið í heimi“ „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Danir komnir í gang á EM EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili „Það vantaði baráttuna“ Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Valskonur sóttu sigur til Eyja í toppslagnum Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Anton og Jónas dæma mikilvægan leik hjá Alfreð Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Skýrsla Vals: Ekki aftur Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Ungverjar með magnaða endurkomu en hvorugt náði Íslandi að stigum EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina „Náðum ekki að hjálpa markvörðunum okkar nóg“ Sjá meira