Kastljós og tónlist 16. nóvember 2012 06:00 Það er eitthvað sem okkur finnst öllum leiðinlegt, að öll þáttagerð sé komin út úr Kastljósi. Þetta er gert út af sparnaði en ég held að þetta sé ákvörðun sem enginn er sáttur við að taka,“ segir XX, ritstjóri þáttarins. Samningur sem Ríkisútvarpið gerði við Félag þáttagerðarfólks, FÞF hefur sökum niðurskurðar orðið til þess að þáttagerðarfólk er hætt að vinna í Kastljósinu. Ástæðan er sú að þátturinn getur ekki lengur borgað þáttagerðarfólki fyrir að koma þar fram. Þrátt fyrir að þáttagerðarfólkinu sjálfu sé flestu sama þótt það fái ekkert greitt, svo lengi sem það fær að vera í sjónvarpinu, getur Kastljósið ekki orðið við ósk þeirra vegna samningsins við FÞF. Hann kveður á um að hver þáttagerðarmaður fái um 22 þúsund krónur fyrir hverja framkomu. „Þetta er skrýtin staða að vera með óánægt þáttagerðarfólk sem vill koma fram. Við viljum fá þau en það er ekki hægt. Það eru allir að tapa á þessu ástandi,“ segir XX. Glöggir lesendur Fréttablaðsins kannast hugsanlega við textann hér að ofan úr viðtali sem tekið var við ritstjóra Kastljóss og birt var þann 13. nóvember síðastliðinn. Textinn er nánast orðréttur nema orðinu „tónlistarmenn“ er skipt út fyrir „þáttagerðarfólk“. Ég hvet lesendur til að prófa fleiri starfsheiti á sama hátt og athuga hvað þeim finnst um útkomuna. Sem tónlistarmaður vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Munurinn á flutningi lifandi tónlistar og auglýsinga er alveg skýr. Lifandi tónlistarflutningur, t.d. í sjónvarpi, er nákvæmlega það sem tónlistarmenn starfa við: Að flytja tónlist. Í sömu blaðagrein var hugtakið auglýsing notað yfir flutning lifandi tónlistar í sjónvarpi. Hér er um ranga hugtakanotkun að ræða. Ef tónlistarmenn auglýsa það sem þeir eru að gera fer það að sjálfsögðu fram í auglýsingatímum samkvæmt þeirri gjaldskrá sem þar gildir. Það má benda á að samningsbundin greiðsla Kastljóssins til tónlistarflytjenda gerir í mörgum tilfellum ekki meira en að rétt duga fyrir kostnaði við að koma upp í Efstaleiti með þau hljóðfæri og tækjabúnað sem til þarf. Og að lokum: Það væri óskandi að tónlistarmenn sjálfir hugleiddu vel hvers virði vinnuframlag þeirra er. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Það er eitthvað sem okkur finnst öllum leiðinlegt, að öll þáttagerð sé komin út úr Kastljósi. Þetta er gert út af sparnaði en ég held að þetta sé ákvörðun sem enginn er sáttur við að taka,“ segir XX, ritstjóri þáttarins. Samningur sem Ríkisútvarpið gerði við Félag þáttagerðarfólks, FÞF hefur sökum niðurskurðar orðið til þess að þáttagerðarfólk er hætt að vinna í Kastljósinu. Ástæðan er sú að þátturinn getur ekki lengur borgað þáttagerðarfólki fyrir að koma þar fram. Þrátt fyrir að þáttagerðarfólkinu sjálfu sé flestu sama þótt það fái ekkert greitt, svo lengi sem það fær að vera í sjónvarpinu, getur Kastljósið ekki orðið við ósk þeirra vegna samningsins við FÞF. Hann kveður á um að hver þáttagerðarmaður fái um 22 þúsund krónur fyrir hverja framkomu. „Þetta er skrýtin staða að vera með óánægt þáttagerðarfólk sem vill koma fram. Við viljum fá þau en það er ekki hægt. Það eru allir að tapa á þessu ástandi,“ segir XX. Glöggir lesendur Fréttablaðsins kannast hugsanlega við textann hér að ofan úr viðtali sem tekið var við ritstjóra Kastljóss og birt var þann 13. nóvember síðastliðinn. Textinn er nánast orðréttur nema orðinu „tónlistarmenn“ er skipt út fyrir „þáttagerðarfólk“. Ég hvet lesendur til að prófa fleiri starfsheiti á sama hátt og athuga hvað þeim finnst um útkomuna. Sem tónlistarmaður vil ég koma eftirfarandi á framfæri: Munurinn á flutningi lifandi tónlistar og auglýsinga er alveg skýr. Lifandi tónlistarflutningur, t.d. í sjónvarpi, er nákvæmlega það sem tónlistarmenn starfa við: Að flytja tónlist. Í sömu blaðagrein var hugtakið auglýsing notað yfir flutning lifandi tónlistar í sjónvarpi. Hér er um ranga hugtakanotkun að ræða. Ef tónlistarmenn auglýsa það sem þeir eru að gera fer það að sjálfsögðu fram í auglýsingatímum samkvæmt þeirri gjaldskrá sem þar gildir. Það má benda á að samningsbundin greiðsla Kastljóssins til tónlistarflytjenda gerir í mörgum tilfellum ekki meira en að rétt duga fyrir kostnaði við að koma upp í Efstaleiti með þau hljóðfæri og tækjabúnað sem til þarf. Og að lokum: Það væri óskandi að tónlistarmenn sjálfir hugleiddu vel hvers virði vinnuframlag þeirra er.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar