Afreksíþróttir við þolmörk Hannes S. Jónsson skrifar 14. nóvember 2012 06:00 Íþróttahreyfingin er ein stærsta fjöldahreyfing landsins og þúsundir sjálfboðaliða leggja sig fram í hverri viku til að halda úti öflugu starfi hreyfingarinnar. Íþróttir eru taldar ein mesta forvörn sem til er, um það efast fæstir. Flestir ef ekki allir þingmenn okkar eru sammála því en því miður þá virðist stór hluti þeirra samt sem áður hafa takmarkaðan skilning á starfsemi íþróttahreyfingarinnar og þá sérstaklega afreksstarfinu. Ráðherrar, alþingismenn og aðrir stjórnmálamenn eru duglegir að mæta á viðburði þegar afreksfólkið okkar nær góðum árangri – það er flott að láta taka myndir af sér með íþróttamönnum og vinsælt er að koma með örlítil peningaverðlaun líka svo þeir geti nú sagst hafa stutt íþróttafólkið til góðra verka. Þetta virkar þó hjákátlegt gagnvart öllum þeim sem koma að afreksstarfi í íþróttum. Til þess að halda úti öflugu afreksstarfi þarf fjármagn og til þess að ná árangri þarf fjármagn! Innan ÍSÍ eru 28 sérsambönd og halda þau öll úti afreksstarfi. Hvað gerir ríkisvaldið til þess að styðja við bakið á þessum 28 sérsamböndum? Jú, það greiðir 34,7 milljónir í Afrekssjóð ÍSÍ á þessu ári eða um ríflega 1,2 milljón fyrir hvert sérsamband ef við gefum okkur þá reikniformúlu. Það sjá allir að þetta er heldur dapurt. Á fjárlögum fyrir árið 2013 er ekki gert ráð fyrir hækkun í Afrekssjóð ÍSÍ. Það eru mikil vonbrigði og því spyr ég þeirrar einföldu spurningar: „Er það vilji alþingismanna okkar að leggja niður afreksíþróttir á Íslandi?“ Körfuknattleikssambandið, KKÍ, er eitt af stærri sérsamböndum innan ÍSÍ. Körfuknattleikur er ein stærsta og vinsælasta íþróttagrein í heimi og mjög erfitt getur verið fyrir Ísland að ná árangri á alþjóðlegum vettvangi í jafn stórri íþróttagrein. Innan raða KKÍ er mikill metnaður og vilji til að halda úti öflugu afreksstarfi – starfi sem getur leitt til þess að við náum viðunandi og góðum árangri á alþjóðlega vísu. Þá kemur að kjarna málsins – það kostar pening að ná árangri! Ísland hefur átt nokkra Norðurlandameistara í yngri landsliðum körfuknattleiks á undanförnum árum, ásamt því að hafa komist í úrslitamót í Evrópukeppni yngri landsliða. Fjölskyldur þessara landsliðsmanna hafa þurft að greiða stóran hluta þessa kostnaðar því annars hefði KKÍ ekki getað sent þessi landslið til keppni. Finnst alþingismönnum að við eigum að velja í landslið eftir efnahag foreldranna? Það er himinn og haf á milli Íslands og annarra landa í Evrópu þegar kemur að fjárveitingum til íþróttamála. Engin ríkisstjórn þeirra landa í Evrópu sem við Íslendingar viljum helst bera okkur saman við styður eins lítið við íþróttahreyfinguna og ríkisstjórn Íslands. Þetta er miður. Það vill því miður oft gleymast hversu góð landkynning okkar góða íþróttafólk er, einnig vill oft gleymast að íþróttirnar er góð tekjulind fyrir þjóðarbúið. Langstærsti kostnaðarliður afreksstarfsins er ferða- og uppihaldskostnaður og hverjir eru það sem njóta þess? Það eru ríkissjóður og fyrirtækin í ferða- og veitingahúsastarfsemi. Afreksíþróttir skapa tekjur og laða að fólk til landsins! Vegna þess að afreksfólkið fær lítinn fjárstuðning frá ríkisvaldinu og fyrirtækin í landinu hafa þurft að minnka stuðning sinn við afreksfólkið okkar, þá stöndum við frammi fyrir því að efnilegir og góðir íþróttamenn sjá ekki fram á að fá tækifæri til að keppa með sínum landsliðum. Þrátt fyrir lítinn skilning ríkisvaldsins þá erum við hér á Íslandi svo heppin að mörg fyrirtæki í landinu sjá sér fært að styðja með ýmsum hætti við bakið á afreksstarfinu og fyrir það ber að þakka og geri ég það af heilum hug. Við sem förum fyrir íþróttahreyfingunni vitum og gerum okkur grein fyrir að ríkissjóður þarf að forgangsraða í sínum fjármálum eins og staðan er á Íslandi í dag. Það eru hins vegar forvarnir til framtíðar að ríkissjóður styðji myndarlega við afrekssjóð íþróttahreyfingarinnar. Það er staðreynd að afreksíþróttir á Íslandi eru komnar að fjárhagslegum þolmörkum. Metnaðurinn, getan, viljinn og þrótturinn hjá íslenskri íþróttahreyfingu er svo sannarlega til staðar til að halda áfram á sigurbraut íslenskra íþrótta. Um það skal enginn efast. Ég bið alþingismenn að hoppa um borð með okkur núna áður en það verður um seinan, tíminn er naumur. Að lokum langar mig að þakka þingkonunum Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir þingsályktunartillögu sem þær lögðu nýverið fram á Alþingi um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson Skoðun Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar Jón Daníelsson Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Öryggi og varnir Íslands Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland Skoðun Gerist þetta aftur á morgun? Ísak Hilmarsson Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Auglýsingaskrum Landsvirkjunar Stefán Georgsson Skoðun Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar Skoðun Samkeppnin tryggir hag neytenda Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Stóðhryssur ekki moldvörpur Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Við getum gert betur Einar Bárðarson skrifar Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Ábyrg stefna í útlendingamálum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Týndu hermennirnir okkar Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Gerist þetta aftur á morgun? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar Jón Daníelsson skrifar Skoðun Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Fréttir af baggavélum og lömbum Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Auglýsingaskrum Landsvirkjunar Stefán Georgsson skrifar Skoðun Öryggi og varnir Íslands Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar Skoðun Takk Trump! Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar Soffía Sigurðardóttir skrifar Skoðun Tími til að staldra við Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvar er fyrirsjáanleikinn, forsætisráðherra? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun 25 metrar í Fannborg Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Krossferðir - Íslamófóbía - Palestína Kristján Þór Sigurðsson skrifar Skoðun Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Frumvarp til ólaga Jón Ásgeir Sigurvinsson skrifar Skoðun Hervirki í höfuðborg - Svefngenglar við stjórnvölinn Örn Sigurðsson skrifar Skoðun „Drifkraftur að óöryggi og óvissu“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Klerkaveldi, trú og stjórnmál Sigurður Árni Þórðarson skrifar Sjá meira
Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun
Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar
Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öryggi og varnir Íslands Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar
Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun