Skoðun

Sundið

Hörður J. Oddfríðarson skrifar
Jón Karl Helgason kvikmyndagerðarmaður hefur gert heimildarmynd um sund. Við fyrstu sýn hljómar það ekkert sérstaklega spennandi, en myndin er afskaplega vel heppnuð, sýnir annars vegar keppni þeirra nafna Benedikts Hjartarsonar og Benedikts Lafleur um að verða fyrstur Íslendinga að synda yfir Ermarsund og hins vegar sýnir myndin ýmis þrekvirki sem hafa verið unnin í sundi kringum Ísland í gegnum aldirnar þar sem fólk hefur átt líf sitt undir því að kunna að synda. Og það er einmitt sá vinkill sem heldur myndinni saman og skýrir hversu mikil afrek þeir Benedikt og Benedikt unnu í tilraunum sínum við að synda yfir Ermarsundið.

Fyrir Sundsamband Íslands og sundhreyfinguna í landinu er þessi mynd gulls ígildi, því hún sýnir mikilvægi þess að kunna að synda, hún sýnir fegurð og drengskap sundíþróttarinnar, hún sýnir að einhverju leyti það álag sem keppnissundfólk býr við í undirbúningi fyrir keppni og hún segir sögu sundíþróttarinnar á Íslandi frá landnámsöld.

Það var ekki sjálfgefið að þessar upplýsingar og þessi saga byggju áfram í minni þjóðarinnar fyrr en nú að Jón Karl og hans fólk setja hana í mynd. Fyrir það ber að þakka og halda á lofti nöfnum þess fólks sem af einskærum áhuga og elju leggst í slíka vinnu.

Það er von okkar að þessi mynd, Sundið, haldi okkur Íslendingum við efnið, þannig að við týnum ekki niður sundkunnáttu okkar og gætum þess að kenna öllum börnum okkar að synda hér eftir sem hingað til. Gleymum því ekki að drukknun er önnur helsta dánarorsök vegna slysa í heiminum. Aðferðin við að minnka hættu á drukknun er að kenna sund snemma og viðhalda kunnáttunni alla ævi. Það eykur líka lýðheilsu þjóðarinnar.




Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×