Forgangsakreinar Strætó Magnús Hansson skrifar 14. nóvember 2012 06:00 Nýlokið er evrópskri samgönguviku. Þar ræddu menn um samgöngumál, s.s. að hjóla, ganga og nota almenningssamgöngur. Í evrópskum borgum er mikið lagt upp úr því að almenningssamgöngur séu góðar, enda fyrir því löng hefð og ein meginforsenda skilvirkrar borgarumferðar. Margt jákvætt hefur verið unnið á undanförnum árum til að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, s.s. með forgangsakreinum og bættu aðgengi að biðstöðvum. En betur má ef duga skal! Sérstakur vinnuhópur hefur starfað hjá Strætó bs. sl. fimm ár. Hópurinn vinnur að því að bæta umhverfi fyrir farþega og leggja fram tillögur um hvað betur má fara til að greiða fyrir umferð strætisvagna. Forgangsakreinar fyrir strætisvagna hafa margsannað gildi sitt og vinnur hópurinn markvisst að fjölgun þeirra. Hafa ber þó í huga að þar sem almennar akreinar þvera forgangsakreinar við gatnamót þarf almenn umferð að sýna sérstaka aðgæslu, s.s. við rauða dregilinn á Miklubraut. Þar leynast varasamar slysagildrur þegar umferð frá Grensásvegi, Háaleitisbraut og Kringlu þvera forgangsakreinina við akstur inn á Miklubraut. Nokkur tjón hafa átt sér stað við þannig aðstæður og mikill fjöldi „næstum því slysa“. Því er full ástæða til að hvetja almenning til að sýna tillitssemi og aka varlega við forgangsakreinar Strætó! Rétt er einnig að hvetja fulltrúa sveitarfélaganna í stjórn Strætó bs. til að taka höndum saman um að fjölga forgangsakreinum og slá þar með tvær flugur í einu höggi. Auk þess að auðvelda för strætisvagna, munu þær að sjálfsögðu hraða för sjúkra- og neyðarbíla á álagstímum, þegar almennar akreinar eru meira og minna stíflaðar vegna bílamergðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Nýlokið er evrópskri samgönguviku. Þar ræddu menn um samgöngumál, s.s. að hjóla, ganga og nota almenningssamgöngur. Í evrópskum borgum er mikið lagt upp úr því að almenningssamgöngur séu góðar, enda fyrir því löng hefð og ein meginforsenda skilvirkrar borgarumferðar. Margt jákvætt hefur verið unnið á undanförnum árum til að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, s.s. með forgangsakreinum og bættu aðgengi að biðstöðvum. En betur má ef duga skal! Sérstakur vinnuhópur hefur starfað hjá Strætó bs. sl. fimm ár. Hópurinn vinnur að því að bæta umhverfi fyrir farþega og leggja fram tillögur um hvað betur má fara til að greiða fyrir umferð strætisvagna. Forgangsakreinar fyrir strætisvagna hafa margsannað gildi sitt og vinnur hópurinn markvisst að fjölgun þeirra. Hafa ber þó í huga að þar sem almennar akreinar þvera forgangsakreinar við gatnamót þarf almenn umferð að sýna sérstaka aðgæslu, s.s. við rauða dregilinn á Miklubraut. Þar leynast varasamar slysagildrur þegar umferð frá Grensásvegi, Háaleitisbraut og Kringlu þvera forgangsakreinina við akstur inn á Miklubraut. Nokkur tjón hafa átt sér stað við þannig aðstæður og mikill fjöldi „næstum því slysa“. Því er full ástæða til að hvetja almenning til að sýna tillitssemi og aka varlega við forgangsakreinar Strætó! Rétt er einnig að hvetja fulltrúa sveitarfélaganna í stjórn Strætó bs. til að taka höndum saman um að fjölga forgangsakreinum og slá þar með tvær flugur í einu höggi. Auk þess að auðvelda för strætisvagna, munu þær að sjálfsögðu hraða för sjúkra- og neyðarbíla á álagstímum, þegar almennar akreinar eru meira og minna stíflaðar vegna bílamergðar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar