Bæjarstjórinn boðar úttekt á skólafæðinu 7. nóvember 2012 07:00 Jón Axelsson „
Ef þetta er matur sem er ekki nægjanlega góður fyrir kennara þá er hann náttúrlega ekki heldur nógu góður fyrir börnin okkar,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sem boðar úttekt á fæði í grunnskólum bæjarins. „Okkur finnst eðlilegt að fá óháða úttekt á matnum þannig að foreldrar barnanna og starfsfólk þurfi ekki að hafa áhyggjur af því sem þau eru að setja ofan í sig,“ segir bæjarstjórinn. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær gagnrýnir Félag grunnskólakennara í Hafnarfirði að starfsmönnum skólanna standi ekki til boða sami tvíréttaði matseðill og öðrum bæjarstarfsmönnum heldur einfaldari matseðill sem sniðinn er að bragðlaukum barna. Það er fyrirtækið Skólamatur í Reykjanesbæ sem annast matargerðina í báðum tilfellum og raunar alls í hátt í þrjátíu skólum frá Suðurnesjum og inn í Kópavog. Gunnur Baldursdóttir, formaður Félags grunnskólakennara í Hafnarfirði, segir að fyrir hrun hafi matráður annast um mat og kaffi sem hægt var að kaupa á kennarastofunni. Nú þurfi þeir starfsmenn sem séu í áskrift hjá Skólamat hins vegar að standa í röð með börnunum og láta skammta sér á diskinn og ganga síðan inn á kennarastofuna. Það sé tímafrekt í stuttum matartíma. „Við erum með börnum allan daginn og finnst allt í lagi að við eigum matartímann út af fyrir okkur,“ segir Gunnur sem kveður gagnrýni kennaranna í raun ekki beinast að matnum sjálfum. „Fólki gremst einfaldlega að ekki sé gætt jafnræðis. Það er ekki boðið upp á sama mat hjá okkur og öðru starfsfólki bæjarins. Við erum að tala um það að geta nálgast matinn á þægilegan hátt og þurfa ekki að eyða matartímanum okkar í að standa í biðröð.“ Jón Axelsson, framkvæmdastjóri hjá Skólamat, segir að maturinn sem fyrirtækið selur sé matreiddur ferskur á hverjum stað fyrir sig. Maturinn sem skólarnir fái sé þróaður samkvæmt smekk barna og kröfum Lýðheilsustöðvar. „Ég tel gæðakerfi okkar stuðla að því að nemendur fái hollan mat sem þau vilja borða. Maturinn er miðaður við börn á grunnskólastigi en það hefur gengið mjög vel að bjóða starfsfólki upp á þann mat,“ segir Jón. Að sögn Jóns er um að ræða hollan og góðan mat, hvort sem litið er til matseðilsins fyrir börnin eða seðilsins sem til dæmis bæjarskrifstofurnar í Hafnarfirði fá. Það sé í höndum bæjaryfirvalda ef breyta á matseðlunum í skólunum. „Ég hef falið sviðsstjóra að kalla saman hóp þar sem eru fulltrúar frá kennurum og Skólamat til að setjast niður og skoða hvað er hægt að gera til þess að gera fólk aðeins sáttara við þá umgjörð sem er,“ segir bæjarstjórinn um næstu skref. gar@frettabladid.is
Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira