Aukinn kraft í nýsköpun Áslaug María Friðriksdóttir skrifar 6. nóvember 2012 06:00 Drifkraftur nýsköpunar á sér frekar stað hjá einkaaðilum en hinu opinbera. Hins vegar ætti nýsköpun að eiga jafn vel heima í opinberum rekstri. Hugtakið nýsköpun vísar til breytinga. Hægt er að tala um nýsköpun þegar verulegar breytingar verða á afurðum, aðferðum eða skipulagi. Markmiðin með nýsköpun geta verið ólík. Þau geta fjallað um nýjungar og viðbætur en eins sparnað í rekstri og skilvirkni í þjónustu. Nýsköpun er háð því að stjórnendur og starfsmenn hafi frelsi og getu til að prófa nýjar hugmyndir og leiðir. Starfsumhverfið, viðhorf og menning innan fyrirtækjanna geta þar skipt sköpum. Nauðsynlegt er að rekstrarumhverfi opinberra stofnana gefi rými til nýsköpunar. Ekki er nægilegt rými fyrir nýsköpun innan opinberrar þjónustu. Þetta á sérstaklega við um velferðar- og menntageirann. Hugsjónafólk sem vill gera tilraunir til að reka öðruvísi þjónustu fer gjarnan út í einkarekstur enda hentar ríkisramminn illa eða alls ekki. Gott dæmi er Hjallastefnan. Þar hefur hugsjónafólk haldið út fyrir rammann til að reka þjónustu á annan hátt en hefðbundið er. Mörg dæmi eru um að einkaaðilar, sjálfseignarstofnanir eða samtök taki að sér að sjá um þjónustu á hendi ríkisins. Nefna má Sóltún sem Öldungur hf. rekur og sinnir þjónustu við aldraða, en þar hefur mikið frumkvöðlastarf verið unnið við að innleiða nýja nálgun í þjónustu. Heilbrigðisþjónustan í Salahverfi í Kópavogi hefur einnig verið rekin af einkaaðila í nokkur ár með sóma og fyrirtækið Karitas sinnir sérhæfðri heimaþjónustu fyrir langveika með því markmiði að efla slíka þjónustu og styrkja. Ákveðin stífni hefur einkennt viðbrögð við þessari þróun. Nú er hins vegar ekki hægt að horfa fram hjá því að bæði notendur og stjórnendur kalla á breytingar. Hagsmunasamtök fatlaðra eru á einu máli um að efla beri vald notenda. Notendur eigi að stjórna hvernig þjónusta er veitt í stað þess að opinberir starfsmenn hafi þau völd í hendi sér. Aldraðir hafa látið í sér heyra og telja á sér brotið af því að þeir hafa ekki tækifæri til að velja sjálfir um það hvernig, hvenær og hver veitir þeim þjónustu. Athyglisvert var einnig að sjá í fréttum um daginn að heimilislæknar telja að starfsumhverfið hér á landi sé ekki nógu aðlaðandi, of stíft og henti þeim illa. Þeir komi flestir frá Norðurlöndunum, þar sem þeir hafi mun meiri tækifæri til að hafa áhrif á eigið starfsumhverfi. Því sé hætta á flótta úr greininni. Allt í kringum okkur spretta upp vísbendingar um að það kerfi sem við nú rekum verði að taka meiri breytingum. Aukinn sveigjanleiki í opinberum rekstri er nauðsynlegur og aðkallandi. Vald þarf að færast til stjórnenda og notenda og stífir rammar þurfa að heyra sögunni til. Höldum nýsköpuninni ekki í skefjum. Gefum henni aukinn kraft. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen Skoðun Stóðhryssur ekki moldvörpur Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir Skoðun Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar Jón Daníelsson Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson Skoðun Skoðun Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar Skoðun Samkeppnin tryggir hag neytenda Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Stóðhryssur ekki moldvörpur Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Við getum gert betur Einar Bárðarson skrifar Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Ábyrg stefna í útlendingamálum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Týndu hermennirnir okkar Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Gerist þetta aftur á morgun? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar Jón Daníelsson skrifar Skoðun Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Fréttir af baggavélum og lömbum Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Auglýsingaskrum Landsvirkjunar Stefán Georgsson skrifar Skoðun Öryggi og varnir Íslands Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar Skoðun Takk Trump! Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar Soffía Sigurðardóttir skrifar Skoðun Tími til að staldra við Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvar er fyrirsjáanleikinn, forsætisráðherra? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun 25 metrar í Fannborg Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Krossferðir - Íslamófóbía - Palestína Kristján Þór Sigurðsson skrifar Skoðun Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Frumvarp til ólaga Jón Ásgeir Sigurvinsson skrifar Sjá meira
Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun
Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar
Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar
Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öryggi og varnir Íslands Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar
Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun