Skoðun

Orkuveitan og almenningur

Guðmundur Ólafsson skrifar
Á dögunum kom út skýrsla um stöðu Orkuveitunnar, en tvær af helstu mjólkurkúm Reykvíkinga hafa verið sameinaðar í henni. Kom í ljós að fjárhagsleg staða hennar er afleit og er helsta orsök talin að gjöld og tekjur eru ekki í sama gjaldmiðli, en sérstaklega á þetta við um afborganir lána sem eru yfirleitt erlend en tekjur í íslenskum krónum.

Nú vill svo til að hverri skýrslunni af annarri og sérfræðingaálitum snjóar yfir oss þar sem því er haldið blákalt fram að þetta verði að vera svona hjá almenningi, hann verði að borga í öðrum gjaldmiðli en tekjur hans eru. Kerfi sem talið er fábjánaháttur hjá Orkuveitunni er talið óhjákvæmilegt fyrir almenning og því sé ekki hægt að breyta nema með áratuga línudansi ofvita.

Samt er það svo að einföld lög sem leyfðu notkun til dæmis evru og/eða dollars (Kanada og/eða US) sem lögeyri, að menn mættu eiga og leggja í banka erlenda mynt eins og útgerðarmenn og heildsalar gera gjarnan erlendis, myndu leysa að mestu það mikla óréttlæti sem felst í þeirri gjaldeyrisnauðung sem við búum við. Ríkið þyrfti engu að kosta til, menn mynduðu sinn eigin gjaldeyrisforða. Þó væri líklega sanngjarnt að skylda starfsmenn Seðlabanka til þess að nota íslenska krónur, þar sem þeir vilja skylda alla aðra til þess.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×