Þannig útrýmdi Reykjanesbær kynbundnum launamun! Stjórnendur Reykjanesbæjar skrifar 1. nóvember 2012 08:00 Hjá Reykjanesbæ sem vinnuveitanda er enginn kynbundinn launamunur. Þetta er auðvelt að fullyrða þar sem farið er í launabókhald stofnana bæjarins og heildarlaun vegna sömu eða sambærilegra starfa eru borin saman. Nú þegar ríkisstjórnin hefur blásið til nýrrar sóknar með nýrri aðgerðaáætlun um launajafnrétti, ætti að vera áhugavert fyrir ríkisstjórnina að kanna hvernig tekist hefur að útrýma kynbundnum launamun og halda í horfinu á síðustu fimm árum, af forystu og stjórnendum Reykjanesbæjar. Í nýlegri könnun á vegum BSRB kom fram að óútskýrður kynbundinn launamunur hjá hinu opinbera nemur í dag 13,1% og hefur aukist frá síðustu könnun. Aðferðin sem notuð var byggði á spurningakönnun til úrtaks félagsmanna. Aðferðin sem beitt er hjá Reykjanesbæ byggir ekki á spurningakönnun til starfsmanna um laun og launakjör heldur er farið beint í launabókhald og launaseðla og þannig unnt að fá nákvæmari niðurstöðu á mögulegum launamun. Öllum má vera ljóst að svokallaður óútskýrður kynbundinn launamunur kemur til af því að körlum er í sumum tilvikum úthlutað hærri launum með því að greiða þeim óútskýrða fleiri yfirvinnutíma, hærri bílapeninga eða hærri aukagreiðslur en gert er til kvenna við sambærilegar aðstæður. Á hverju byggir vinna okkar? Reykjanesbær hefur sett fram jafnréttisáætlun. Þar segir m.a. að „konur og karlar skulu njóta sambærilegra kjara og réttinda. Greiða skal konum og körlum jöfn laun fyrir jafnverðmæt eða sambærileg störf. Hæfnis- og árangurslaun og aðrar ákvarðanir sem hafa áhrif á kjör skulu byggjast á málefnalegum forsendum óháð kyni". Jafnframt segir að „leiðrétta skuli laun ef óútskýranlegur mismunur komi fram". Þetta er nákvæmlega það sem gert hefur verið. Orðum fylgja athafnir. Þegar stefna gegn óútskýrðum launamun er skýrt sett fram, er einfalt að útrýma honum. Allar ríkisstofnanir, öll ráðuneyti og öll sveitarfélög hafa upplýsingar um laun og launakjör starfsmanna sinna. Alls staðar er unnt að kalla fram upplýsingar um laun, yfirvinnugreiðslur og aukagreiðslur. Alls staðar bera stjórnendur ábyrgð á að leyfa slíkar greiðslur sem eru umfram kjarasamninga. Með því að bera saman allar greiðslur og skoða hvað liggur að baki þeim er auðvelt að finna þann launamun sem getur gefið til kynna að kynin njóti ekki jafnra launa fyrir jafnverðmæt eða sambærileg störf. Þar sem þessi mismunun liggur fyrir ber að segja slíkum samningum upp. Þeir þurfa eðlilegan uppsagnartíma. En sá tími þarf ekki að taka fjögur ár. Það á því ekki að taka mörg ár að útrýma kynbundnum launamun. Forystumenn Reykjanesbæjar hafa lagt áherslu á að vel sé fylgst með því að viðhalda þeim árangri sem náðst hefur með því að hafna áfram kynbundnum launamun. Við erum karlar og konur, feður og mæður bæði drengja og stúlkna. Við þolum einfaldlega ekki slíka mismunun á launum fyrir sömu störf, bara af því að sá sem vinnur starfið sé karlkyns. Niðurstaða okkar er að með ákveðnu, einföldu vinnuferli, sem fylgir fast eftir skýrri stefnu og mælir árangur, er unnt að jafna launamun á skömmum tíma. Þetta kallar á að allir forsvarsmenn stofnana og sveitarfélaga taki ábyrgð á að fylgja pólitískri stefnu eftir. Komi fram ábendingar um misræmi, verði strax tekið á því. Forystumenn verða að hafa hugann við efnið og krefjast upplýsinga, lesa niðurstöður og krefjast aðgerða í kjölfar þeirra. Í stjórnunarteymi Reykjanesbæjar: Árni Sigfússon, Bjarni Þór Karlsson, Björn Samúelsson, Guðfinna Eyjólfsdóttir, Guðlaug María Lewis, Guðlaugur H. Sigurjónsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Gyða Margrét Arnmundsdóttir, Gylfi Jón Gylfason, Hera Ósk Einarsdóttir, Hjördís Árnadóttir, Hjörtur Zakaríasson, Pétur Jóhannsson, Ragnar Örn Pétursson, Stefán Bjarkason, Valgerður Guðmundsdóttir, Þórey I. Guðmundsdóttir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar