Skuldir Álftaness = Icesave Garðbæinga? Jón Árni Bragason skrifar 18. október 2012 06:00 Fram undan eru kosningar um sameiningu Garðbæjar við Álftanes. Upplýsingagjöf og umræða hefur verið einhliða og forsvarsmenn Garðabæjar forðast gagnrýnar spurningar. Hér eru nokkrar tölur og staðreyndir sem gera Garðbæingum kleift að ganga upplýstari til kosninga. Kröfuhafar Álftaness hafa mestan hag af sameiningu og sameiningarhugmyndirnar taka fyrst og fremst mið af þeirra hagsmunum. Álftanesbær er í raun gjaldþrota og skuldar tæpa sex milljarða í dag en ekki 2-3 eins og gefið er í skyn. Skuldageta Álftaness er einn milljarður og kröfuhafar þurfa að finna aðra til að greiða tæpa fimm milljarða. Með sameiningu sveitarfélaganna munu Garðbæingar greiða 3,3 milljarða af skuldum Álftaness og skattborgarar landsins aðra 1,2 milljarða í gegnum Jöfnunarsjóð. Kröfuhafar gefa eftir samtals 0,3 milljarða ef af sameiningu verður. Eftirgjöf krafna er því ekki 32% eins og fullyrt er. Fasteign ehf. selur sundlaugina frægu á 1,5 milljarð núvirt í stað þess að eiga framvirka 2,2 milljarða leigukröfu. Ekkert faglegt eignamat hefur farið fram til þess að meta raunverulega stöðu eigna Álftaness. Í málflutningi sameiningarmanna eru mannvirki Álftaness metin á 3,3 milljarða, þar af sundlaugin á 1,5 milljarða. Sams konar mannvirki Garðabæjar eru í dag vannýtt með um 70% nýtingarhlutfall. Ráðast þarf í umfangsmiklar framkvæmdir vegna viðhalds gatna, fasteigna og fráveitna á Álftanesi. Áætlaður kostnaður nemur hundruðum milljóna. Greiðsla skulda Álftaness, fjármagnskostnaður og nauðsynlegar framkvæmdir taka um 3,5-4,5 milljarða úr sjóðum og af framtíðartekjum Garðbæinga. Sú fjárhæð verður því ekki notuð til framkvæmda og eflingar þjónustu í Garðabæ á næstu árum. Nýting þessara fjármuna í framkvæmdir og þjónustu í Garðabæ myndi stórbæta núverandi samfélag okkar: lækka skuldir, opna möguleika á lækkun skatta og þjónustugjalda, bæta lánshæfismat Garðabæjar, auka verðmæti eigna og hagkvæmni í rekstri. Ábyrgðir Álftaness og óútkljáð dómsmál geta aukið sex milljarða skuldir Álftnesinga um hundruð milljóna, sömuleiðis mun rekstrartap Álftaness að meðtöldum fjármagnskostnaði 2011 og 2012 þýða hundruða milljóna skuldaaukningu. Hugmyndin er að Garðbæingar borgi. Álftanes er 7% af sameiginlegu sveitarfélagi, að hluta í einkaeigu, og búið er að skipuleggja að mestu landsvæði sem Álftanes á. Álftaneshverfið í sameinuðu bæjarfélagi er óhagkvæm rekstrareining og yrði áfram. Kostnaður við rekstur þess hverfis mun stóraukast á næstu árum. Álftnesingar yrðu 17% íbúa í sameinuðu sveitarfélagi en stæðu undir 13% af tekjum þess. Fáir ef nokkrir langtímakostir eru í spilunum við áformaða sameiningu. Skammtímakostir eru engir. Ekkert faglegt mat hefur farið fram á samhæfingu málaflokka, réttindum íbúa og starfsmanna, öðrum sameiningarmöguleikum eða valkostinum að sameina ekki. Tökum varfærna upplýsta ákvörðun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar