Skoðun

OracleStudium (áður Stoðkennarinn.is) biðlar til embættismanns

Starkaður Barkarson skrifar
Ég hef verið haldinn þeirri stórfurðulegu blindu seinasta áratug að halda að góðir hlutir seldu sig sjálfir og oftast fyrir það verð sem þeim ber. Og þrátt fyrir að flest mælti á móti þessari staðföstu trú minni þá var það ekki fyrr en að snilldarbragð þeirra hjá Skýrr – nú Advania – lak út, að ég áttaði mig á því að ég hef verið á rangri braut allan þennan tíma. Það er í raun hægt að selja meingallað kerfi til óánægðra notenda aftur og aftur á uppsprengdu verði. Galdurinn er hins vegar sá að hitta á réttan embættismann.

Nú er ég ekki nógu kunnugur embættismannakerfi ríkisins og man í svipinn ekki eftir neinum frænda né frænku sem vinnur hjá ríkinu, þannig að ég ákvað að biðla til þessa eina rétta embættismanns á síðum Fréttablaðisns.

Áður en ég legg fram tilboð mitt vil ég þó vara þig við að kerfið sem ég ætla að bjóða þér er alls ekki meingallað. Það hefur (þrátt fyrir fjársvelta og vanbúna skóla) verið í notkun í íslensku skólakerfi í hátt í áratug og virðist bara virka nokkuð vel. Og það er kannski óþarflega einfalt í notkun og laust við allan véfréttastíl því við höfum ekki þurft að heimsækja skóla sérstaklega til að kenna starfsfólki eða nemendum á það. En við gætum auðveldlega bætt við einhverjum flóknum fídusi ef því er að skipta.

Tilboð:

Allir nemendur í 7.-10. bekk fá aðgang að námsefni Stoðkennarans (www.stodkennarinn.is). Innifalið er aðgangur að stafsetningu, málfræði, bókmenntum, stærðfræði, dönsku, ensku og ritþjálfa. Einnig fá áhugasamir foreldrar frían foreldraaðgang og að sjálfsögðu fá kennarar þeirra aðgang svo þeir geti fylgst með einkunnum og kynnt sér efnið.

Ég lá lengi yfir þessu innleiðingarhugtaki. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg hvernig það getur verið flókið eða kostnaðarsamt að innleiða kerfi sem virkar og er notandavænt. Notkunarleiðbeiningar geta hæglega verið aðgengilegar á vefnum sjálfum í formi PDF-skjala og myndbanda, þannig að starfsmenn ættu ekki að þurfa að vera á þönum milli landshluta með tilheyrandi kostnaði. En það lítur kannski betur út að hafa sannfærandi innleiðingarlið í samningi okkar þannig að ég legg til að við setjum 107.050 kr. þar til skrauts. Mér skilst reyndar að þessar tölur eigi það til að margfaldast í höndum ykkar.

Hvað varðar mánaðarleg gjöld legg ég til um 20 þúsund krónur á skóla, að meðaltali, á mánuði. En þér er velkomið að hækka verðið ef þér finnst það kjánalegt.

Ég hálf fyrirverð mig fyrir þessu lágu upphæðir en eins og áður hefur komið fram er vara mín hvorki nógu gölluð né ónotendavæn til að fara fram á mikið meira. Og svo er þetta auðvitað bara ætlað skólafólki og sýslar að mestu með þekkingu og kunnáttu en ekki debet og kredit og því varla hægt að búast við of miklu.

Svar sendist á stodkennarinn@stodkennarinn.is merkt sem Féfrétt.

Starkaður Barkarson




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×