Súðavík er í brunarúst Bergvin Oddsson skrifar 3. október 2012 06:00 Umfjöllun um hinn stóra sinubruna sem átti sér stað í lok sumars á Laugarlandi í landi Súðavíkurhrepps hefur ekki farið fram hjá neinum. Nú er reikningurinn kominn og hljóðar upp á 20 milljónir króna. Sveitarfélagið gerði ráð fyrir að kostnaður við að reka slökkviliðið væri ein milljón króna fyrir árið 2012. Kostnaður vegna þessa bruna er því tuttugu sinnum hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tuttugu milljónir virka ekki sem há fjárhæð en fyrir lítið sveitarfélag sem telur innan við 200 íbúa er það stór biti til að kyngja þegar haft er til hliðsjónar að skatttekjur sveitarfélagsins árið 2011 voru innan við 80 milljónir króna. Við erum að tala um fjórðung tekna sveitarfélagsins á ársgrundvelli. Á vegum ríkisins er enginn sjóður til sem tekur á svona slysum. Hvorki Bjargráðasjóður né Viðlagatrygging Íslands greiða bætur vegna svona hamfara. Nú þarf hver íbúi Súðavíkurhrepps að taka á sig meira en hundrað þúsund króna tjón vegna fífldirfsku nokkurra einstaklinga sem höfðu það gaman í Laugarlandi fyrr í sumar. Reykjavíkurborg veltir um 54 milljörðum króna á hverju ári. Fjórðungur þess er um 11 milljarðar króna. Ímyndið ykkur ef tjón af slíkri stærðargráðu kæmi til og reikningurinn ætti allur að lenda á Reykjavíkurborg! Ég myndi ætla að borgarbúar myndu ekki sætta sig við slíkt. Það væri fróðlegt að vita hvort stjórnvöld myndu ekki þá stökkva upp og finna leiðir til þess að aðstoða Reykjavíkurborg. Það er ekki hægt fyrir stjórnvöld að loka augunum fyrir vandamáli Súðavíkurhrepps og gera ekkert í málinu. Ekkert sveitarfélag getur staðið undir svona miklum útgjöldum og samt haldið úti lögbundinni þjónustu. Ég skora á ríkisstjórnina að finna lausn á þessu máli og að komið verði á fót sjóði sem muni hjálpa sveitarfélögum með sams konar óvænt útgjöld. Einnig væri hægt að breyta lögum um Bjargráðasjóð eða Viðlagatryggingu Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Umfjöllun um hinn stóra sinubruna sem átti sér stað í lok sumars á Laugarlandi í landi Súðavíkurhrepps hefur ekki farið fram hjá neinum. Nú er reikningurinn kominn og hljóðar upp á 20 milljónir króna. Sveitarfélagið gerði ráð fyrir að kostnaður við að reka slökkviliðið væri ein milljón króna fyrir árið 2012. Kostnaður vegna þessa bruna er því tuttugu sinnum hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tuttugu milljónir virka ekki sem há fjárhæð en fyrir lítið sveitarfélag sem telur innan við 200 íbúa er það stór biti til að kyngja þegar haft er til hliðsjónar að skatttekjur sveitarfélagsins árið 2011 voru innan við 80 milljónir króna. Við erum að tala um fjórðung tekna sveitarfélagsins á ársgrundvelli. Á vegum ríkisins er enginn sjóður til sem tekur á svona slysum. Hvorki Bjargráðasjóður né Viðlagatrygging Íslands greiða bætur vegna svona hamfara. Nú þarf hver íbúi Súðavíkurhrepps að taka á sig meira en hundrað þúsund króna tjón vegna fífldirfsku nokkurra einstaklinga sem höfðu það gaman í Laugarlandi fyrr í sumar. Reykjavíkurborg veltir um 54 milljörðum króna á hverju ári. Fjórðungur þess er um 11 milljarðar króna. Ímyndið ykkur ef tjón af slíkri stærðargráðu kæmi til og reikningurinn ætti allur að lenda á Reykjavíkurborg! Ég myndi ætla að borgarbúar myndu ekki sætta sig við slíkt. Það væri fróðlegt að vita hvort stjórnvöld myndu ekki þá stökkva upp og finna leiðir til þess að aðstoða Reykjavíkurborg. Það er ekki hægt fyrir stjórnvöld að loka augunum fyrir vandamáli Súðavíkurhrepps og gera ekkert í málinu. Ekkert sveitarfélag getur staðið undir svona miklum útgjöldum og samt haldið úti lögbundinni þjónustu. Ég skora á ríkisstjórnina að finna lausn á þessu máli og að komið verði á fót sjóði sem muni hjálpa sveitarfélögum með sams konar óvænt útgjöld. Einnig væri hægt að breyta lögum um Bjargráðasjóð eða Viðlagatryggingu Íslands.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar