Stjarnan væri stungin af ef flautað væri af í hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. ágúst 2012 00:01 Stjörnumenn fagna hér marki Garðars Jóhannssonar í bikarúrslitaleiknum en hann skoraði strax á sjöttu mínútu leiksins. Fréttablaðið/daníel
Stjörnumenn hafa aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum í Pepsi-deildinni og eiga ekki lengur möguleika á titlinum. Staðan væri allt önnur ef leikir sumarsins hefðu verið flautaðir af eftir 45 mínútur. Stjörnumenn komust yfir í bikarúrslitaleiknum á móti KR og hafa oftar en ekki verið með flotta stöðu í hálfleik í sumar. Fótboltaleikir standa hins vegar í 90 mínútur og seinni hálfleikir sumarsins hafa séð til þess að Stjarnan fékk silfur í bikarnum og keppir ekki við FH og KR um Íslandsmeistaratitilinn. Stjörnumenn hafa bara unnið einn af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni og hafa fyrir vikið dottið niður í fimmta sæti. Þeir væru hins vegar með örugga forystu á toppnum hefðu allir leikir sumarsins verið flautaðir af í hálfleik. Stjörnumenn eru aðeins búnir að vera tvisvar sinnum undir í hálfleik í Pepsi-deildinni í sumar og jafnteflisleikurinn á móti ÍBV í síðustu umferð var ellefti leikur Garðbæinga í sumar þar sem þeir komu með forystu inn í hálfleik. Ekkert lið hefur skorað meira á fyrstu fimmtán mínútum leikjanna og Stjarnan hefur skorað fyrsta markið í 65 prósent leikja sinna í sumar. Það eru sjö leikir síðan Stjörnuliðið var undir í hálfleik en það gerðist síðast í 1-1 jafntefli liðsins á móti Breiðabliki 16. júlí síðastliðinn. Það er jafnframt síðasti leikurinn sem Garðbæingum tókst að vinna seinni hálfleikinn. Fyrir sex leikjum áttu Garðbæingar möguleika á því að blanda sér af fullum krafti í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn en slæmir seinni hálfleikir hafa kostað liðið 8 stig í síðustu sex leikjum og það munar um minna í slagnum við FH, KR og ÍBV. Þrjú efstu liðin hafa öll gert miklu betur í seinni hálfleik en Stjörnumenn. FH-ingar hafa sjö stiga forystu á toppi deildarinnar enda búnir að vinna tólf leiki í fyrstu 17 umferðunum en Hafnfirðingar leggja grunninn að flestum þeirra eftir hálfleiksræðu Heimis Guðjónssonar. FH-liðið hefur bara sjö sinnum verið yfir í hálfleik í sumar. KR-ingar hafa aðeins unnið tvo af síðustu sjö fyrri hálfleikjum sínum sem hefur ekki hjálpað liðinu í baráttunni við FH og er án vafa ein af ástæðum þess að Vesturbæjarliðið hefur bara náð í 9 af síðasta 21 stigi í boði. Eyjamenn eru aðeins í 8. sæti á þessum lista en þeir hafa skorað 20 af 28 mörkum sínum í sumar í seinni hálfleik sem hefur hjálpað liðinu mikið við að landa stigum í sínum leikjum. Hér fyrir neðan má síðan sjá stöðuna í „fyrri hálfleiks deildinni".Pepsi-deild karla ef flautað væri af í hálfleik 1. Stjarnan 37 stig (Markatala: 20-11) 2. FH 28 stig (14-7) 3. KR 25 stig (12-7) 4. Valur 25 stig (11-10) 5. Keflavík 23 stig (11-7) 6. Breiðablik 21 stig (5-5) 7. ÍA 19 stig (9-14) 8. ÍBV 19 stig (8-8) 9. Fram 19 stig (6-12) 10. Selfoss 16 stig (11-11) 11. Grindavík 16 stig (7-13) 12. Fylkir 16 stig (7-15)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira