Íslenski boltinn

Við verðum að fara að vinna leiki

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það var létt yfir sænska landsliðsþjálfaranum á æfingu með landsliðinu fyrir leikinn.fréttablaðið/anton
Það var létt yfir sænska landsliðsþjálfaranum á æfingu með landsliðinu fyrir leikinn.fréttablaðið/anton
Íslenska karlalandsliðið leikur í kvöld sinn fyrsta heimaleik undir stjórn Svíans Lars Lagerbäck. Þá koma Færeyingar í heimsókn á Laugardalsvöllinn en þetta er vináttulandsleikur á milli þjóðanna.

„Vonandi náum við að vinna leikinn og ég vonast líka eftir því að liðið sýni góða frammistöðu," sagði landsliðsþjálfarinn. Liðið hefur sýnt mikil batamerki undir hans stjórn en fyrsti sigurinn hefur látið á sér standa.

Þjálfarinn gerir ráð fyrir að nota marga leikmenn í leiknum og til að mynda mun landsliðsfyrirliðinn, Aron Einar Gunnarsson, líklega aðeins spila í 45 mínútur enda á hann að spila með sínu félagsliði á föstudag.

„Mér finnst liðið hafa spilað vel í síðustu leikjum en við verðum að fara að vinna leiki og búa til sigurhefð hjá okkur. Ég held að það muni koma enda tekur liðið framförum í hverjum leik og allt hefur verið jákvætt fyrir utan úrslitin."

Bæði Eiður Smári Guðjohnsen og Grétar Rafn Steinsson eru í hópnum þó svo þeir séu án félags sem stendur.

„Þeir munu klárlega ekki vera í byrjunarliðinu og það er ekki ákveðið hvort, eða hversu mikið, þeir spila. Ég vildi aftur á móti sjá þá á æfingum. Ef þeir vilja spila með okkur í komandi undankeppni verða þeir að finna sér félag. Annars verða þeir ekki með okkur," sagði Lagerbäck en hann ætlar að láta liðið spila svipað í kvöld og það hefur verið að gera undir hans stjórn.

„Við viljum sækja með boltann og vera skynsamir sama á móti hvaða liði við erum. Við verðum að halda jafnvægi í liðinu og vonandi getum við sótt meira í þessum leik en í síðustu leikjum. Eina sem við munum líklega breyta er á miðjunni þar sem við viljum skilgreina hlutverk varnarsinnuðu miðjumannanna betur. Það á samt ekki að breyta okkar leik mikið."

Óhætt er að segja að flestir knattspyrnuáhugamenn krefjist þess að Ísland vinni Færeyjar í hverjum leik.

„Ég verð auðvitað mjög svekktur ef við töpum en hvort það verði áfall get ég ekki sagt til um. Stundum kemur það fyrir í fótbolta að lið spilar vel en tapar samt 1-0. Ég vil samt virkilega mikið vinna minn fyrsta leik á heimavelli."

Þessi leikur er lokaverkefnið í undirbúningi fyrir undankeppni HM 2014. Þar mætir Ísland liði Noregs á heimavelli í fyrsta leik þann 7. september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×