Svarta keilan tákn um ofbeldi á helgum stað 4. október 2012 05:00 Staðsetning listaverks Santiagos Sierra um borgaralega óhlýðni á Austurvelli vekur hörð viðbrögð hjá Alþingi og minnihlutanum í borgarstjórn Reykjavíkur.Samsett mynd
Fulltrúar Besta flokksins og Samfylkingar sem saman mynda meirihluta borgarstjórnar samþykktu á þriðjudag að útilistaverkið Svarta keilan yrði á suðvesturhorni Austurvallar eins og safnstjóri Listasafns Reykjavíkur lagði til. Listamaðurinn Santiago Sierra gaf borginni Svörtu keiluna með því skilyrði að það stæði á Austurvelli. Verkið, sem er innblásið af búsáhaldabyltingunni, er sagt vera minnismerki um borgaralega óhlýðni. Alþingi hefur lýst eindreginni andstöðu við staðsetningu Svörtu keilunnar á Austurvelli. Minnihlutinn í borgarstjórn er á sömu línu. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, segir verkið tengjast óeirðum veturinn 2008 til 2009. Þó að flestir sem hafi mótmælt við Alþingishúsið á þeim tíma hafi gert það með friðsamlegum hætti hafi ofbeldi verið beitt og lögregluþjónar særðir. „Þó í kannski ekki miklum mæli hafi verið – og í rauninni með hótunum um ofbeldi – þá var löglega kjörin ríkisstjórn hrakin frá völdum,“ segir Kjartan, sem kveðst vona að slíkir atburðir endurtaki sig aldrei. „Mér finnst í rauninni bara síst ástæða til að minnast þess með einhverju sérstöku minnismerki. Að minnsta kosti hefði mátt finna því annan stað; það hefði ekki átt að vera sett niður á þessum helga stað þjóðarinnar.“ Sóley Tómasdóttir úr Vinstri grænum sagði á borgarstjórnarfundinum á þriðjudag að jákvætt væri að tengja saman list og borgaralega óhlýðni, sem væri nauðsynleg. „Það verk sem nú stendur til að staðsetja á Austurvelli getur þó ekki talist hentugt til þessa, enda er þannig verið að hampa listamanni sem hefur markvisst leikið sér í krafti sterkrar efnahagslegrar og samfélagslegrar stöðu að mörkum sjálfsvirðingar hjá fólki sem ekki er í stöðu til að afþakka smánarleg tilboð hans um niðurlægingu gegn gjaldi,“ bókaði Sóley. Kjartan tekur undir þetta: „Hann var að kaupa ógæfusama einstaklinga og vændiskonur til þess að húðflúra á bakið á þeim. Mér finnst það nánast vera mannréttindabrot í sjálfu sér hvernig hann kemur fram við fólk. Mér finnst það ekki viðeigandi að listaverk sem fer á mest áberandi og einhvern helgasta stað þjóðarinnar eigi að vera unnið með þeim hætti.“ Kosið verður til borgarstjórnar að nýju næsta vor. Spurður hvort hugsanlegur nýr meirihluti myndi fjarlægja listaverkið segir Kjartan ekki hægt að segja til um það núna. „Þetta er ákveðin niðurstaða og síðan er að sjá hvernig þetta kemur út.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira