Hollenskur bergrisi í Almannagjánni 23. júlí 2012 05:00 Menn þurfa ekki að hafa varann á þegar þeir eiga leið um Almannagjá því þessi birtist ekki nema með íhlutun Auke de Vries. mynd/auke de vries
Mér fannst það bara alveg borðleggjandi að láta risa stíga út úr berginu, ég er jú á Íslandi þar sem tröll og ýmsar vættir ráða ríkjum,? segir hollenski hreyfimyndaframleiðandinn Auke de Vries. Hann gerði myndskeið þar sem bergrisi brýst út úr berginu í Almannagjá. De Vries er einn þeirra listamanna sem haft hafa aðsetur í Gullkistunni á Laugarvatni. Gullkistan tekur á móti hundraðasta listamanninum til dvalar í sumar. Alda Sigurðardóttir, annar forsprakka Gullkistunnar, segir að oftast liggi margra ára undirbúningur að baki hjá listamönnum sem þangað komi frá öllum heimshornum. De Vries fékk skemmri fyrirvara en flestir, en hefur greinilega látið þetta óvænta ferðalag setja mark sitt á ferillinn. ?Ég var við nám í listaháskóla,? rifjar de Vries upp. ?Lokaverkefnið þar var stuttmyndin, ?The Super Rope Solution? sem síðan vann til fyrstu verðlauna á TENT kvikmyndahátíðinni og í verðlaun fékk ég þessa dvöl hjá Gullkistunni. Það var ekkert í kortunum að fara til Íslands en ég er hæstánægður að dvölina hérna.? Listamenn Gullkistunnar hafa vinnuaðstöðu í gömlu fjósi við bæinn Eyvindartungu og segist de Vries kunna vel við sig þar meðal kollega sinna. En hann heldur ekki alltaf kyrru fyrir, til dæmis brá hann sér í hjólreiða-túr til Þingvalla fyrir skemmstu. Andinn virðist hafa verið yfir honum í þeirri ferð því nú þegar hefur hann búið til myndbút þar sem risi brýtur sig lausan úr berginu við Almannagjá og tekur svo á rás. Þennan myndbút segist hann ætla að nota í mynd sem hann muni vinna úr Íslandsdvölinni. Meðal annarra listamanna sem glóa í Gullkistunni þessa dagana er bandaríska tónlistarkonan Du Yun. Hún er fædd í Kína en hefur nú haslað sér völl í New York þar sem hún vinnur jafnt með sinfóníur, óperur og nýtískulega raftónlist. jse@frettabladid.is
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira