Óbreyttir mokveiddu í boði borgarstjórnar 19. júlí 2012 05:00 Elínborg Ragnarsdóttir Fallegur lax úr Sjávarfossi í höndum ánægðar veiðikonu. Mynd/Reykjavíkurborg
Nokkrir borgarstarfsmenn gerðu góða ferð inn að Elliðaám í síðustu viku og lönduðu 27 löxum á einum degi. Borgarfulltrúar og fyrrverandi borgarstjórar eru áfram úti í kuldanum eftir áratuga forgang að veiðidögum borgarinnar. Sannkallað mok mun hafa verið í Elliðaánum á föstudaginn þegar starfsmenn Reykjavíkurborgar mættu þar á bakkana. Alls veiddust 27 laxar á stangirnar sex sem er aldeilis skínandi árangur. Elínborg Ragnarsdóttir af framkvæmda- og eignasviði borgarinnar var ein þeirra sem átti góðan dag í Elliðaánum. „Ég hef veitt einu sinni í Elliðaánum áður en er samt algjör amatör og hefði ekki fengið þessa tvo fiska nema fyrir góða aðstoða frá manni úr Stangaveiðifélaginu,“ segir Elínborg. Sagt er frá því á vef Reykjavíkurborgar að borgin hafi fimm daga til umráða í Elliðaánum í sumar. Þar af veiði borgarstarfsmenn og „hvunndagshetjur“ í þrjá daga. Fyrirkomulaginu var breytt í fyrra. „Áður voru þessir dagar notaðir af borgarfulltrúum, gestum Orkuveitu Reykjavíkur og fyrrverandi borgarstjórum. Nú er hafður sá háttur á að starfsmenn Reykjavíkurborgar eru hvattir til þess að benda á dugmikla samstarfsmenn sína og hefur það mælst afar vel fyrir,“ segir á reykjavik.is. Veiðimenn borgarinnar á föstudag nutu aðstoðar frá félögum í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur sem síðan fær tvo daga af áðurnefndum fimm fyrir barna- og unglingastarf félagsins. „Þetta var stórkemmtilegur dagur og afar sérstakt að vera á veiðum innan um skokkara og hjólreiðafólk,“ segir Elínborg sem hafði landað tveggja laxa kvóta sínum strax klukkan ellefu. Og þar sem hún veiddi á maðk varð hún að hætta veiðunum við svo búið. Þeir sem veiddu á flugu gátu hins vegar haldið áfram þótt kvótanum væri náð þar sem mun hægara er að sleppa aftur laxi sem veiddur er á flugu. Elínborg kveður fiskana sem hún veiddi hafa verið afar spræka og tekið vel í. „Ég er búin að elda annan þeirra og hann var feikilega góður.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Umdeildur sýnkudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira