Atli: Ég er alls ekki markagráðugur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júní 2012 07:00 Atli skoraði eitt og lagði upp tvö í heimaleiknum gegn Fylki. Fréttablaðið/Daníel „
Það er ekki oft sem maður vinnur svona stórt í efstu deild. Ég hef aldrei lent í þessu áður. Þetta er sérstakt," segir Atli um stórsigurinn gegn Fylki, 8-0, sem vakti mikla athygli. „Það gekk allt upp sóknarlega hjá okkur. Við spiluðum mjög vel úti á vellinum, sköpuðum okkur færi sem við nýttum vel. Á svoleiðis dögum skorum við mörg mörk," segir Atli sem segir ljóst að Fylkisliðið hafi ekki átt sinn besta dag. Árni Freyr, yngri en um leið töluvert hávaxnari bróðir Atla, var í Fylkisliðinu. Atli sagði ekkert annað í stöðunni fyrir hann og Fylkismenn en að setja hausinn upp í loft og halda áfram. „Hann tók þessu eins og maður og skutlaði mér meira að segja heim eftir leikinn," segir Atli og bætir við að þeim bræðrum sé vel til vina og að engin vandræðaleg þögn hafi verið í bílnum á leiðinni heim. „Við erum góðir vinir og hefðum spjallað saman hvort sem þeir hefðu unnið eða við," segir Atli. Þótt Atli hafi verið iðinn við kolann í markaskorun undanfarin ár hefur hann ekki gert minna af því að leggja upp mörk fyrir félagana. „Það er engin markagræðgi í mér. Ég er bara liðsmaður og nokkuð góður sem slíkur. Ef það er einhver í betra færi gef ég boltann." FH og Fylkir mætast aftur á föstudagskvöld, þá í 32-liða úrslitum bikarsins í Kaplakrika. Atli reiknar ekki með því að leikmenn FH mæti með hangandi hendi í þann leik þrátt fyrir upprúllunina. „Miðað við alla reynsluna í liðinu þætti mér það ólíklegt. Þótt leikurinn hafi unnist 8-0 fengum við bara þrjú stig," segir Atli og bendir á að það þýði ekki að fagna einum sigri of mikið. Atli starfar sem stærðfræðikennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hann segir nemendur sína stundum skjóta á sig ef illa gengur í boltanum en hann taki því, líkt og hrósi þegar vel gengur, með stóískri ró. „Við töpuðum 4-0 gegn Stjörnunni í fyrra og þá fékk maður aðeins að heyra það."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira