Íslenski boltinn

Verður á brattann að sækja í upphafi móts

Ásmundur Arnarsson tók við þjálfun Fylkis í haust.
Ásmundur Arnarsson tók við þjálfun Fylkis í haust.
Ásmundur Arnarsson, nýr þjálfari Fylkis, hefur staðið í ströngu á sínu fyrsta undirbúningstímabili með liðið. Meiðsli í leikmannahópnum hafa plagað liðið og hefur Fylkismönnum ekki gengið nógu vel í undirbúningsmótunum nú eftir áramót.

Finnur Ólafsson kom frá ÍBV eftir síðasta tímabil og Björgólfur Takefusa frá Víkingi. Báðir eru þó meiddir og ekki leikfærir fyrr en rétt fyrir fyrsta leik tímabilsins í Pepsi-deildinni. Þá eru fleiri meiddir; Þórir Hannesson, Tómas Þorsteinsson og Árni Freyr Guðnason en sá síðastnefndi kom frá ÍR í haust.

„Úrslitin tala sínu máli en það sem hefur farið mest í taugarnar á mér er hversu langvarandi þessi meiðslavandræði hafa reynst," sagði Ásmundur við Fréttablaðið.

„Finnur og Björgólfur hafa verið í basli vegna hnémeiðsla og fóru báðir í speglunaraðgerð fyrir fáeinum vikum. Þórir og Tómas hafa heldur ekki getað komist almennilega af stað og óvíst hvenær þeir komast aftur á fullt."

Ásmundur hefur getað notað unga leikmenn úr röðum Fylkis en það kvarnast meira að segja úr þeim hópi í upphafi móts, vegna góðs árangurs íslenska U-17 liðsins sem tryggði sér á dögunum sæti í úrslitakeppni Evrópumeistaramótsins. Það mót fer fram í upphafi maí.

„Hjörtur Hermannsson og Emil Ásmundsson hafa báðir spilað með okkur í vetur. Hjörtur mun fara til PSV í júní í sumar en ætlaði að hjálpa okkur í maí. En góður árangur strákalandsliðsins hefur nú sett strik í reikninginn," sagði Ásmundur en samningar um sölu Hjartar til hollenska stórliðsins PSV Eindhoven tókust nú fyrr í vetur.

Hann segir að það sé nóg af góðum efniviði í Árbænum og margir ungir strákar sem hafa öðlast dýrmæta reynslu með liðinu í vetur. En Ásmundur neitar því ekki að hann hafi áhyggjur af stöðu leikmannahópsins.

„Jú, auðvitað hef ég áhyggjur af því og sjálfsagt verður á brattann að sækja í upphafi móts fyrir okkur. En ég bind vonir við að það muni horfa til betri vegar eftir því sem líður á mótið. Það ætlar sér enginn að taka þátt í fallbaráttu og vonandi tekst okkur að forðast hana."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×