Ólafur og Þóra hnífjöfn 13. apríl 2012 06:15 Þóra Arnórsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson eru hnífjöfn í skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi og Ólafur Ragnar Grímsson, sitjandi forseti, njóta hvort um sig stuðnings um 46 prósenta þjóðarinnar samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Aðrir frambjóðendur komast vart á blað. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar, sem gerð var á miðvikudags- og fimmtudagskvöld, fengi Ólafur Ragnar um 46 prósent atkvæða yrði gengið til forsetakosninga nú. Þóra Arnórsdóttir hefur afgerandi forskot á aðra frambjóðendur sem bjóða sig fram gegn sitjandi forseta, og fengi samkvæmt könnuninni um 46,5 prósent atkvæða. Aðrir frambjóðendur njóta mun minni stuðnings. Um 2,9 prósent þeirra sem afstöðu taka í könnuninni segjast myndu kjósa Herdísi Þorgeirsdóttur og 1,5 prósent styðja Ástþór Magnússon. Jón Lárusson fengi samkvæmt könnuninni 1,2 prósent atkvæða og Hannes Bjarnason 0,4 prósent. „Ég sé fram á hörkuspennandi forsetakosningar," segir Grétar Þór Eysteinsson, stjórnmálafræðiprófessor við Háskólann á Akureyri. Hann segir niðurstöðurnar hljóta að gefa Þóru byr í seglin, en að sama skapi hljóti þær að vera verulegt áhyggjuefni fyrir Ólaf. Þóra nýtur meiri stuðnings meðal kvenna en Ólafur, en fleiri karlmenn styðja Ólaf en Þóru. Ólafur Ragnar nýtur hins vegar meiri stuðnings á landsbyggðinni, en Þóra er með sterkari stöðu á höfuðborgarsvæðinu.- bj
Forsetakosningar 2012 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar Sjá meira