Lífið

Eftirlætisgrannar Ameríku

Bandaríkjamenn vilja flestir búa við hlið Tim Tebow.
Bandaríkjamenn vilja flestir búa við hlið Tim Tebow.
Flestir Bandaríkjamenn myndu kjósa íþróttamanninn Tim Tebow sem nágranna sinn ef marka má nýja könnun sem gerð var í Bandaríkjunum fyrir stuttu. Í öðru sæti var Jolie-Pitt-fjölskyldan.

Um þúsund manns tóku þátt í könnuninni og töldu 11 prósent þeirra að Tim Tebow yrði hinn fullkomni nágranni á meðan 10 prósent vildu helst búa við hlið Angelinu Jolie og Brad Pitt.

Jolie-Pitt fjölskyldan var í öðru sæti.
Jennifer Aniston kom svo í þriðja sæti með 9 prósent atkvæða. Þær stjörnur sem fæstir Bandaríkjamenn myndu vilja búa í nágrenni við voru stjörnurnar í Jersey Shore, Charlie Sheen, Lindsay Lohan og Kim Kardashian.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×