Nasasalurinn fær ekki að standa, nema þú mótmælir Helgi Þorláksson skrifar 19. júlí 2012 06:00 30.júní sl. var í Fréttablaðinu fyrirsögnin „Nasa fær að standa áfram við Austurvöll“. Í undirfyrirsögn segir að samkvæmt vinningstillögu verði ekkert hús rifið. Þá var vísað í tillögu sem hlaut fyrstu verðlaun í „Samkeppni um uppbyggingu í miðborg Reykjavíkur“. Þetta er alrangt, hinn sögufrægi Nasasalur við Austurvöll fær ekki að standa og starfsemi sem fer fram í nýjum sal verður tengd hótelrekstri. Þeim sem vilja mótmæla niðurrifinu er bent á www.ekkihotel.is. Í skýringum með umræddri tillögu segir m.a.: Ekki er talið raunsætt að vernda húshlutann sem hýsir skemmtistaðinn Nasa, samkvæmt tillögum er sá hluti fjarlægður og byggður upp aftur í breyttri mynd. Byggður verði nýr salur, eins konar kjallari – og hann byggður í mynd núverandi salar… (Tekið upp úr texta á sýningu í Landsímahúsi við Kirkjustræti; hún var opnuð 29. júní sl. Leturbreytingar hér.). Segir enn fremur að þennan nýja sal skuli nota fyrir fundi og ráðstefnur í tengslum við nýtt hótel. Má gera ráð fyrir að hugmyndir í þessari tillögu verði meginviðmiðun í meðförum arkitekta, skipulagsráðs í Reykjavík og skipulagsstjóra, nema fólk spyrni við fótum. Þann 10. júlí var í Fréttablaðinu umfjöllun um málið og stendur þar í millifyrirsögn „Nasa haldi sér“. Er þá vísað til viðtals við annan tveggja höfunda tillögunnar sem hlaut fyrstu verðlaun og segir þar að komi til greina að nota í nýjum sal „einhverjar af sömu innréttingunum“ sem eru í núverandi sal. Arkitektinn segir enn fremur að gert sé ráð fyrir að hægt verði „að nota salinn fyrir tónleika- og skemmtanahald“. Þetta kemur ekki vel heim við það sem eigandi salarins segir í Morgunblaðinu 6. júlí sl., í nýja salnum skuli vera skemmtanir og ráðstefnur í tengslum við hótelið sem reisa skal, segir hann. Sé hugsanlegt að þarna verði skemmtistaður en hann verði þá fyrst og fremst hluti af hótelrekstrinum. Eigandinn leggur áherslu á að Nasa hafi verið lokað fyrir fullt og allt. „Þetta verður ekki Nasa,“ segir hann, og nefnir ekki flutning gamalla innréttinga í nýja salinn. Hér er verið að tala ýmist um Nasasalinn sjálfan, þe. salinn frá 1946, eða fyrirtækið sem rak starfsemi í salnum undir Nasanafninu. En hvort sem er, hvort tveggja er úr sögunni á þessum stað, verði hugmyndir eigandans að veruleika. Nasasalurinn verður þá rifinn og allt á huldu um hvort tónleikar og dans í kunnum stíl verði í hinum nýja sal. Ekki er að sjá að eigandinn hafi áhuga á slíku. Sinnuleysi olli því að Naustið og Reykjavíkurapótek voru eyðilögð. Látum ekki Nasasalinn í Sjálfstæðishúsinu gamla verða slíkri eyðileggingu að bráð. Sættum okkur ekki við óljósar hugmyndir um að einhverjar innréttingar úr gamla salnum verði e.t.v. fluttar í hinn nýja. Öflug mótmæli á www. ekkihotel.is hafa áhrif á borgarfulltrúa og stuðla að friðun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Halldór 20.06.2026 Halldór „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar