Íslenski boltinn

Er spáin enn að stríða KR?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Íslandsmeistarar KR náðu aðeins í eitt stig út úr fyrstu tveimur umferðum Pepsi-deildar karla og það þrátt fyrir að skora fjögur mörk í leikjunum á móti Stjörnunni (2-2) og ÍA (2-3).

Það verður seint sannað hvort einhver tengsl séu á milli slakrar byrjunar KR-inga og því að KR sé spáð Íslandsmeistaratitlinum en tölfræðin segir þó sína sögu.

KR-liðið hefur nefnilega aðeins náð í samtals 2 stig (af 18 mögulegum) í fyrstu tveimur umferðunum í þrjú síðustu skiptin sem KR hefur verið spáð Íslandsmeistaratitlinum í árlegri spá þjálfara og fyrirliða (2004, 2010 og 2012).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×