Aron: Ekki auðvelt að fylla skarð Arnórs Henry Birgir Gunnarsson skrifar 19. nóvember 2012 06:30 Arnór hafði verið að spila mjög vel í vetur og mikið áfall fyrir hann nordicphotos/ bongarts
Íslenska landsliðið og þýska liðið Flensburg varð fyrir miklu áfalli í gær þegar Arnór Atlason meiddist illa í leik með Flensburg gegn Hamburg í Meistaradeild Evrópu. Arnór sleit þá hásin í fyrri hálfleik. Hann stökk upp í hraðaupphlaupi og meiddist er hann lenti. Gríðarlegt áfall fyrir leikmanninn sem hefur verið í lykilhlutverki hjá íslenska landsliðinu undanfarin ár. Arnór verður væntanlega frá í sex til átta mánuði og spilar því ekki meir á þessari leiktíð. „Þetta er áfall fyrir okkur í landsliðinu. Arnór hefur verið að spila vel með Flensburg í vetur og það er mikill missir af manni eins og Arnóri. Við eigum eftir að sakna hans á HM í janúar," sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari. „Það er sjónarsviptir af Arnóri og það verður ekki auðvelt að fylla hans skarð. Nú þurfa aðrir menn að stíga upp og leysa þessa stöð," sagði Aron sem missti af því er Arnór meiddist. „Ég kom seint inn í leikinn og sá að Arnór var ekki með. Óttaðist strax að hann væri meiddur og fékk það svo staðfest. Þá bölvaði ég. Þetta var smá gusa í andlitið og ég finn til með Arnóri sem hefur verið að spila frábærlega fyrir Flensburg í vetur. Vonandi kemur hann fljótt til baka og sterkari sem fyrr." Arnór hefur væntanlega leikið sinn síðasta leik fyrir Flensburg því hann gengur í raðir franska félagsins St. Raphael næsta sumar.
Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Sjá meira