Björgum mannslífum og bætum umhverfið Elí Úlfarsson skrifar 19. nóvember 2012 06:00 Nýverið var greint frá því í fréttum að Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélög á Stór-Reykjavíkursvæðinu hefðu gert samkomulag við íslenska ríkið þess efnis að ekki yrði efnt til neinna stórframkvæmda í samgöngumálum í Reykjavík næstu tíu árin. Þessi ráðstöfun verður að teljast í meira lagi undarleg, því hér í Reykjavík og nágrenni býr stærstur hluti þjóðarinnar, hér er umferðin mest og hér er mest aðkallandi að hefja framkvæmdir til að greiða fyrir umferðinni. Á sama tíma og aðeins örlítið brot vegafjár fer til Reykjavíkur er fjármunum almennings sólundað í óarðbærar framkvæmdir á borð við Héðinsfjarðargöng og Vaðlaheiðargöng, en þau hin síðarnefndu stytta ferðatímann austur fyrir Akureyri um aðeins tíu mínútur.Umferðartafir kosta Þær tafir sem verða á háannatímum á helstu umferðaræðum Reykjavíkurborgar kosta samfélagið margar milljónir króna dag hvern. En hér kemur hvort tveggja til vinnutap og aukinn eldsneytiskostnaður, að ekki sé minnst á mengunina sem fylgir því þegar bifreiðar stöðva og taka af stað í sífellu. Tími er dýrmætur og er það allra hagur að honum sé ekki eytt í umferðarteppum. Vinstrimeirihlutinn í borgarstjórn gætir fjarri því hagsmuna borgarbúa í þessum málaflokki heldur dregur algjörlega taum landsbyggðarþingmanna Samfylkingarinnar. Aukin fjárframlög til Strætó munu aldrei bæta fyrir þann skaða sem Samfylkingin hefur valdið í umferðarmálum Reykjavíkur. Almenningur hefur fyrir löngu kosið að nýta sér fjölskyldubílinn umfram aðra samgöngumáta.Fólk hafi val Við sjálfstæðismenn viljum að einstaklingurinn hafi val. Vinstrimenn vilja aftur á móti stjórna lífi samborgara sinna, þar á meðal hvernig þeir ferðast. Sósíalisma sinn setja þeir nú í búning borgarskipulagsfræði og umhverfisverndar, en sósíalistar hafa á öllum tímum haft lag á að fegra ásýnd hugmyndafræði sinnar. Undir niðri býr þó alltaf kalt og napurt stjórnlyndið. Öryggi er síðan stærsti þátturinn í þessu þar sem mannslíf verða ekki metin til fjár. Mislæg gatnamót draga úr alvarlegum slysum, en langflest alvarleg umferðarslys á Stór- Reykjavíkursvæðinu verða á ljósastýrðum gatnamótum. Það er hagur allra landsmanna að mun hærra hlutfalli vegafjár verði varið til samgöngubóta í Reykjavík. Höfundur býður sig fram í sjötta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Nýverið var greint frá því í fréttum að Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélög á Stór-Reykjavíkursvæðinu hefðu gert samkomulag við íslenska ríkið þess efnis að ekki yrði efnt til neinna stórframkvæmda í samgöngumálum í Reykjavík næstu tíu árin. Þessi ráðstöfun verður að teljast í meira lagi undarleg, því hér í Reykjavík og nágrenni býr stærstur hluti þjóðarinnar, hér er umferðin mest og hér er mest aðkallandi að hefja framkvæmdir til að greiða fyrir umferðinni. Á sama tíma og aðeins örlítið brot vegafjár fer til Reykjavíkur er fjármunum almennings sólundað í óarðbærar framkvæmdir á borð við Héðinsfjarðargöng og Vaðlaheiðargöng, en þau hin síðarnefndu stytta ferðatímann austur fyrir Akureyri um aðeins tíu mínútur.Umferðartafir kosta Þær tafir sem verða á háannatímum á helstu umferðaræðum Reykjavíkurborgar kosta samfélagið margar milljónir króna dag hvern. En hér kemur hvort tveggja til vinnutap og aukinn eldsneytiskostnaður, að ekki sé minnst á mengunina sem fylgir því þegar bifreiðar stöðva og taka af stað í sífellu. Tími er dýrmætur og er það allra hagur að honum sé ekki eytt í umferðarteppum. Vinstrimeirihlutinn í borgarstjórn gætir fjarri því hagsmuna borgarbúa í þessum málaflokki heldur dregur algjörlega taum landsbyggðarþingmanna Samfylkingarinnar. Aukin fjárframlög til Strætó munu aldrei bæta fyrir þann skaða sem Samfylkingin hefur valdið í umferðarmálum Reykjavíkur. Almenningur hefur fyrir löngu kosið að nýta sér fjölskyldubílinn umfram aðra samgöngumáta.Fólk hafi val Við sjálfstæðismenn viljum að einstaklingurinn hafi val. Vinstrimenn vilja aftur á móti stjórna lífi samborgara sinna, þar á meðal hvernig þeir ferðast. Sósíalisma sinn setja þeir nú í búning borgarskipulagsfræði og umhverfisverndar, en sósíalistar hafa á öllum tímum haft lag á að fegra ásýnd hugmyndafræði sinnar. Undir niðri býr þó alltaf kalt og napurt stjórnlyndið. Öryggi er síðan stærsti þátturinn í þessu þar sem mannslíf verða ekki metin til fjár. Mislæg gatnamót draga úr alvarlegum slysum, en langflest alvarleg umferðarslys á Stór- Reykjavíkursvæðinu verða á ljósastýrðum gatnamótum. Það er hagur allra landsmanna að mun hærra hlutfalli vegafjár verði varið til samgöngubóta í Reykjavík. Höfundur býður sig fram í sjötta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar