Forsetinn sór embættiseið Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. ágúst 2012 16:26 Ólafur Ragnar Grímsson sór embættiseið í dag. mynd/ þþ.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands sór embættiseið í fimmta sinn í þinghúsinu um klukkan tuttugu mínútur yfir fjögur í dag. Það var Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, sem setti Ólaf Ragnar Grímsson í embætti. Hann gekk að því loknu á svalir Alþingishússins ásamt Dorrit Moussaieff forsetafrú þar sem hann bað menn að minnast fósturjarðarinnar. Ólafur Ragnar sagði í ræðu sem hann hélt svo að nýafstaðnar kosningar hefðu verið gagnleg vegferð, skerpt sýn landsmanna á forsetaembættið, eflt samræður um heill og farsæld Íslendinga. „Á þessari stundu er því rétt að þakka öllum sem með framboði sínu og stuðningssveitum gerðu þjóðinni kleift að meta embættið, eðli þess og verkefni á vogarskálum sem æðstar eru í lýðræðisskipan, kosningum þar sem allir standa jafnfætis," sagði Ólafur Ragnar. „Forsetakjör af slíkum toga er í takt við lýðræðiskröfur okkar tíma, fylgir þeim betur en viðhorfin sem löngum réðu för, að ekki væri við hæfi að etja kappi við forsetann, að hið fyrsta kjör skapaði hefðarrétt til langrar setu," bætti hann jafnframt við. Ólafur Ragnar sagði að lýðræðiskjarni stjórnarskrár og tíðarandi nýrrar aldar væru ótvíræðar vísbendingar um að sérhver forseti eigi að fagna því að athafnir hans og orðræða séu vegin og metin við endurnýjun umboðsins, einkum þegar umdeildar ákvarðanir hafi verið dagskrárefni, forsetinn vísað lögum frá Alþingi í dóm þjóðarinnar. Hér má lesa ræðu forsetans
Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira