Innlent

Skriðdrekinn verður endurbyggður

Skriðdrekinn sem brann.
Skriðdrekinn sem brann.
Til stendur að byggja nýjan skriðdreka í stað þess sem brann í skemmtigarðinum við Gylfaflöt í Grafarvogi. Það voru óprúttnir aðilar sem lögðu eld að skriðdrekanum sem var þó ekki hefðbundið hertól heldur smíðaður úr keflum, símastaur og tréi.

Samkvæmt forsvarsmönnum garðsins er kostnaðurinn allnokkur vegna málsins en til stendur þó að reisa annan eins skriðdreka í garðinum innan tíu daga.

Garðurinn er enn opinn þrátt fyrir skemmdarverkin en mikið er að gera í garðinum. Þar takast hópar á í litbolta. Brennuvargarnir eru ófundnir.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×