Vinnufélagar Halldórs Ásgrímssonar ósáttir við kjör sín Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. september 2012 09:39
Starfsmenn Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar, sem hafa aðstöðu í Kaupmannahöfn, eru svo óánægðir með efnahagsaðstæður í Danmörku að þeir vilja að starfsaðstaða þeirra sé færð. „Við erum óánægðir með það að danska ríkisstjórnin vill ekki undanskilja okkur virðisaukaskattinum. Laun okkar eru undir meðaltekjum annarra Norðurlanda og þá sérstaklega Noregs. Þetta þýðir að það er erfitt fyrir okkur að ráða starfsmenn frá öðrum ríkjum en Danmörku," segir Jan-Erik Enestam, framkvæmdastjóri Norðurlandaráðs, í samtali við danska blaðið Politiken. Bæði Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin hafa verið í Kaupmannahöfn um nokkurra ára skeið. Norræna ráðherranefndin frá 1986 og Norðurlandaráð síðan 1996. Um 120 manns starfa þar. Framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar er Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Þessi óánægja hefur leitt til þess að fjármálaráð Norðurlandaráðs hefur kallað eftir skýrslu um það hvar best væri að hafa skrifstofurnar í framtíðinni. Enastam segir að óánægja starfsmannanna helgist líka af því að danska ríkið hafi boðað níu prósenta niðurskurð á fjárlögum til Norrænu ráðherranefndarinnar á næstu þremur árum. „Ég á ekkert erfitt með það að búa í Danmörku. Þetta er bara spurning um það hvernig Danmörk og danska ríkisstjórnin vill koma fram við Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina," segir Enestam og bætir við að launin séu í samræmi við það sem starfsmenn danska stjórnarráðsins fá. „Það er venja að stofnanir sem þessar greiði ofurlítið hærri laun en gengur og gerist. Þar fyrir utan ættum við að fá greitt aukalega í ljósi þess að stöður okkar eru einungis tímabundnar því við megum bara vinna störfin í mesta lagi í átta ár," bætir hann við. Per-Kristian Foss, fyrrverandi fjármálaráðherra Noregs og formaður fjármálaráðs Norðurlandaráðs, er sammála Enestam. „Vandinn við launin í Danmörku og virðisaukaskattsreglurnar eru þær að þær leiða til þess að einungis fáeinir aðilar vilja vinna í Danmörku,“ segir Foss.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Sjá meira