Páll horfinn af sjónvarpsskjánum í bili 27. október 2012 09:00 Páll Magnússon Útvarpsstjórinn vill hafa óbundnar hendur á meðan málefni RÚV eru til umræðu á Alþingi. „
Ég tók mér bara ótímabundið leyfi frá þessu eins og ég hef oft gert áður," segir Páll Magnússon útvarpsstjóri, sem nú í október hefur ekki lesið fréttir í Sjónvarpinu eins og hann er vanur. Páll segist meðal annars hafa tekið hlé frá fréttalestrinum í vor þegar frumvarp um ríkisútvarpið lá fyrir Alþingi. Frumvarpið verður rætt á Alþingi fyrir áramót. „Þegar RÚV er sjálft mikið í umræðunni er betra að vera laus frá því að lesa fréttir. Þá getur maður frekar tjáð sig á opinberum vettvangi," segir Páll, sem þvertekur fyrir að ákvörðun hans um að hætta fréttalestrinum sé endanleg. „Það er engin dramatísk ákvörðun sem liggur þarna að baki. Ég hef ekki lesið minn síðasta fréttatíma á ævinni." Fréttalestur útvarpsstjórans hefur verið gagnrýndur, meðal annars af stjórnarmönnum í RÚV. Stjórnin hefur þó enga samþykkt gert um málið. Páll neitar því að þrýstingur frá stjórninni hafi ráðið ákvörðun hans. „Menn hafa allar götur frá því ég tók þarna við haft uppi ýmsar skoðanir á þessu, bæði í stjórninni og annars staðar. En þetta er bara ákvörðun sem ég tek og hún gildir ótímabundið þangað til ég tek einhverja aðra ákvörðun," svarar útvarpsstjóri. „No comment," sagði Björg Eva Erlendsdóttir, formaður stjórnar RÚV, spurð hvort stjórnin hefði beitt sér fyrir því að útvarpsstjórinn hætti fréttalestrinum. - gar
Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira