Íslenski boltinn

Slær Bjarni föður sinn út úr undanúrslitunum annað árið í röð?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bjarni Guðjónsson.
Bjarni Guðjónsson. Mynd/Valli
Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR og faðir hans Guðjón Þórðarson, þjálfari Grindavíkur, verða í sviðsljósinu í kvöld þegar Grindavíkur og KR mætast í undanúrslitum Borgunarbikars karla. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Bjarni er í þeirri skrýtnu stöðu að geta slegið föður sinn út úr undanúrslitum bikarsins annað árið í röð. Guðjón þjálfari BÍ/Bolungarvík í fyrra en KR vann undanúrslitaleik félaganna 4-1 á Ísafirði.

KR-liðið er að spila sinn sjötta undanúrslitaleik í bikarnum frá og með árinu 2006 og Vesturbæjarliðið hefur unnið þá alla nema þann á móti Fram á Laugardalsvellinum árið 2009.

KR-ingar eru ríkjandi bikarmeistarar og geta því varið í bikarinn en það hefur ekkert gerst síðan 1994 og 1994 þegar umræddur Guðjón Þórðarson var þjálfari KR-liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×