Handbolti

Aron: Maður verður að hamra á þeim

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Aron gegn fyrrum liðsfélaga sínum hjá Kiel, Kim Andersson.
Aron gegn fyrrum liðsfélaga sínum hjá Kiel, Kim Andersson. Nordic Photos / Getty Images
Aron Pálmarsson átti frábæran dag gegn Svíum í kvöld en hann skoraði níu glæsileg mörk í naumum sigri, 33-32. Það stefndi reyndar í mun öruggari sigur en Svíar náðu að hleypa mikilli spennu í leikinn á lokamínútunum.

„Við vorum búnir að kortleggja þá eins og sást í fyrri hálfleik. Við spiluðum flotta vörn og sóknarleikurinn var að smella hjá okkur. Svo náðum við að halda dampi í seinni hálfleik og keyra vel á þá. En svo hleyptum við þeim allt of nálægt okkur í lokin," sagði Aron.

„Við reyndar misstum marga menn út af og það getur reynst dýrkeypt. Svíarnir tóku sénsinn, breyttu í 4-2 og það gekk næstum því upp hjá þeim. En bara næstum því."

Aron segir að það hefði vitanlega verið þægilegt að halda þessari góðu forystu sem liðið náði í seinni hálfleik allt til loka. „Þá hefðum við líka sent út ákveðin skilaboð því það er mjög gott að taka Svía með svo stórum mun. En tvö stig eru tvö stig og er mér alveg sama hvernig þau komu."

Svíar hófu leikinn af gríðarlegum krafti og Íslendingar voru nokkrar mínútur að fóta sig. Nema Aron, sem kláraði nánast hverja einustu sókn í upphafi leiksins og skoraði fyrstu þrjú mörk liðsins. „Ég var búinn að skoða liðið vel á myndböndum og ég vissi að þeir væru ekki mikið að fara út í skytturnar. Ég var líka búinn að lesa markverðina ágætlega," sagði Aron. „Og ef að þeir koma ekki út í mann fyrstu mínútur leiksins verður maður bara að hamra á þeim."

Ísland vann í kvöld sinn fyrsta stórmótssigur á Svíum síðan 1964 og hefur nú unnið fyrstu þrjá leiki sína á Ólympíuleikum í fyrsta sinn í sögunni. Aron segir samt mikilvægt að fara ekki á flug í huganum.

„Við erum enn í riðlakeppninni. Auðvitað erum við öruggir áfram og allt það en það er enn of snemmt að spá í eitthvað meira en það. Aðalleikurinn verður í fjórðungsúrslitum og ef við vinnum hann þá spilum við um verðlaun. Þetta eru bara staðreyndir. En nú höfum við alla vega sýnt að við erum með lið sem getur farið langt og við stefnum enn að því að ná okkar markmiðum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×