Handbolti

Mikkel Hansen: Síðustu tvö ár horfin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Danski landsliðsmaðurinn Mikkel Hansen sagði í samtali við Vísi að það hefði verið erfitt að taka þeim fregnum að félag hans, AG Kaupmannahöfn, hefði lýst sig gjaldþrota.

„Ég er auðvitað leiður yfir þessu," sagði hann en hlusta má á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan. „Það er ekki gaman að sjá eitthvað sem maður elskar hrynja í sundur."

„Þetta eru vissulega erfiðar aðstæður. Ég hef mætt á æfingar á hverjum degi í tvö ár og hefur alltaf ríkt góður andi í liðinu, innan þess sem utan."

„Allir lögðu virkilega mikið á sig fyrir félagið og við uppskárum eftir því. Það er mjög erfitt að sjá tveggja ára vinnu hverfa á augabragði."

Hann sagðist ekki hafa fengið miklar upplýsingar um rekstur félagsins í sumar þar sem hann hefur verið að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana með danska landsliðinu.

Algjör óvissa ríkir um framtíð leikmanna AG en meðal þeirra eru landsliðsmennirnir Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason. Ólafur Stefánsson lék einnig með liðinu í vetur en samningur hans rann út í lok tímabilsins. Hann hafði þó ekki útilokað að snúa aftur á næsta tímabili.

„Ég veit ekki hvað gerist næst. Umboðsmaðurinn minn er að vinna í mínum málum og erfitt að segja hvað ég muni gera. Ég er nú að einbeita mér að því að spila á Ólympíuleikunum og ég verð að bíða og sjá til hvað gerist eftir þá."

Hann segir að danskur handbolti verði ekki samur vegna brotthvarfs AG. „Auðvitað ekki. Við vorum með frábært lið og að byggja upp handboltafélag á nýjan máta. Þetta er mikill missir bæði fyrir danskan handbolta og dönsku úrvalsdeildina."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×