Viðskipti innlent

Fasteignasalan í borginni áfram í góðum gír

Fasteignasalan á höfuðborgarsvæðinu er áfram í góðum gír. Alls var þinglýst 118 kaupsamningum á svæðinu í síðustu viku sem er töluvert meir en nemur meðaltalinu undanfarna þrjá mánuði sem eru 102 samningar á viku.

Heildarveltan nam rúmum 3,7 milljörðum króna en veltan hefur verið 3,1 milljarður á viku að meðaltali undanfarna þrjá mánuði. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.

Meðalverðið á samning hækkaði um eina milljón frá meðaltalinu og nam 31,6 milljónum króna í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×