Getum verið mjög ánægðir með tímabilið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. september 2012 06:00 sigurbergur Skoraði tvö í leik með Keflavík gegn Fram á sunnudaginn. fréttablaðið/vilhelm
Keflavík nánast gulltryggði sæti sitt í Pepsi-deild karla með 5-0 sigri á Fram á sunnudagskvöldið. Sigurbergur Elísson skoraði tvö marka Keflavíkur en þessi tvítugi miðjumaður er leikmaður umferðarinnar hjá Fréttablaðinu. „Það var frábært að vinna, enda mikilvægur leikur fyrir okkur," sagði Sigurbergur. Þetta var þriðji sigur Keflavíkur á heimavelli í sumar en á ýmsu hefur gengið hjá Keflvíkingum. Þeir hafa unnið stóra sigra en liðið tapaði til að mynda síðustu tveimur deildarleikjum á undan með samtals sjö mörkum gegn engu. „Þetta hefur verið smá rússíbanaferð hjá okkur en heilt yfir hefur sumarið verið afar skemmtilegt. Það er góð blanda ungra og reyndra leikmanna í liðinu og þá var gaman að fá nýja þjálfara inn," sagði Sigurbergur en þeir Zoran Ljubicic og Gunnar Oddsson tóku við liðinu fyrir tímabilið. „Soggi [Zoran] hefur þjálfað okkur ungu strákana undanfarin 6-7 ár og gaman að fá hann," bætti hann við. Sigurbergur er yngsti leikmaður efstu deildar karla í knattspyrnu frá upphafi en hann var aðeins fimmtán ára gamall þegar hann lék sinn fyrsta leik með Keflavík. „Það minnast fáir á þetta met í dag enda hefur mikið gerst á þessum fimm árum sem eru liðin. Ég var frá í um þrjú ár vegna hnémeiðsla og er þetta mitt fyrsta tímabil þar sem ég er alveg laus við meiðslin," segir Sigurbergur sem er vitanlega sáttur við tímabilið hjá sér sem og liðinu. „Það gerast alltaf mistök sem hægt er að læra af en við getum samt verið mjög sáttir við tímabilið. Markmiðið var að gera betur en í fyrra og hefur það tekist. Það eru enn stig eftir í pottinum til að gera enn betur og stefnum við á það."Lið 19. umferðar Pepsi-deildar karla:Markvörður: Páll Gísli Jónsson, ÍAVarnarmenn: Arnór Eyvar Ólafsson, ÍBV Freyr Bjarnason, FH Haraldur Freyr Guðmundsson, Keflavík Kristinn Jónsson, BreiðablikiMiðjumenn: Rúnar Már Sigurjónsson, Val Kristinn Freyr Sigurðsson, Val Sigurbergur Elísson, Keflavík Tómas Óli Garðarsson, BreiðablikSóknarmenn: Víðir Þorvarðarson, ÍBV Atli Guðnason, FH
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira