Þarf lygamæli á bankastjóra Íslandsbanka? Jón Þorvarðarson skrifar 6. desember 2012 06:00 Nýleg frétt sem ber yfirskriftina „Segir Íslandsbanka flæktan í fyrirlitlegan hugmyndastuld" vakti mikla athygli enda raðaði hún sér í fyrsta sæti á Visir.is þann dag sem hún birtist. Fréttin fjallar um stuld bankans á vígorðinu „Reiknaðu með okkur" sem ég kynnti fyrir Birnu Einarsdóttur og hennar nánasta samstarfsfólki, bæði skriflega og munnlega. Og eins og kunnugt er tók fjármögnunarþjónusta bankans (Ergo) upp umrætt vígorð og beitti sömu hugmyndafræði og ég hafði rækilega kynnt fyrir bankanum. Þegar ég krafði Birnu Einarsdóttur um leiðréttingu á hlut bankans gagnvart mér sá hún þann kostinn vænstan að reyna þvo hendur sínar af vansæmdinni með hraksmánarlegum hætti. Sá engan kost betri en að snúast öndverð gegn grátbólgnum staðreyndum málsins.Algjört minnisleysi Þegar blaðamaður DV reyndi að forvitnast um fund minn með Birnu Einarsdóttur og markaðsdeild bankans bar hún fyrir sig algjört minnisleysi eins og hennar virðist háttur. En samt var það Birna sjálf sem boðaði mig á umræddan fund enda hafði hún mikinn áhuga á að fá kynningu á mínu markaðshugverki. En svo hlálega vildi til að í sama viðtalinu missti hún út úr sér, þegar skerpan á minnisleysið var vanstillt, að ég hefði vissulega kynnt hugmyndir mínar innan bankans en nú væri bankinn kominn með aðra auglýsingastofu! Hvernig auglýsingastofa úti í bæ tengist hugverkakynningu minni innan bankans er auðvitað ráðgáta út af fyrir sig. Það var reyndar afleitt afspurnar fyrir viðkomandi blaðamann að leyfa Birnu – sem sumir segja einhvern kunnasta vitavörð minnisleysis hér á landi – að komast upp með að vera tvísaga í sama viðtalinu. Það er því ekki að ástæðulausu að ég spyr hvort það þurfi lygamæli á bankastjóra Íslandsbanka. Það sætir mikilli furðu að Birna Einarsdóttir geti leyft sér að bera fyrir sig minnisleysi því gera verður ráð fyrir að verklag innan Íslandsbanka sé með eðlilegum hætti. Að þeirri forsendu tekinni verður að ætla að meðan Birna gegndi stöðu markaðsstjóra hafi hún samviskusamlega skráð hjá sér hvaðan bankinn fékk hugverkakynningu varðandi markaðssókn og um hvað þær snerust. Sér í lagi þegar hún sjálf falaðist eftir kynningu eins og í mínu tilviki. Enda verður því tæpast trúað að Birna Einarsdóttir hafi stundað þá iðju að boða menn á sinn fund til að bergja af brunni hugmyndafræðilegrar uppsprettu þeirra, gert hugmyndir þeirra að sínum í fyllingu tímans, og borið svo fyrir sig minnisleysi þegar á hana hefur verið gengið.Hrakleg vörn Til undrunar verður að teljast að Birna Einarsdóttir skuli álíta að varnarlegri fótfestu sé náð með því einu að ganga gleymskunni á hönd og bera fyrir sig skjöld minnisleysis. Sú hraklega vörn er að engu hafandi einfaldlega vegna þess að eftir að hún kvað upp úr um að bankinn hygðist ekki nýta sér mínar hugmyndir til markaðssóknar þá þurfti ég að beita mér af alefli til að endurheimta viðkvæm trúnaðarskjöl sem ég hafði látið Birnu í té til frekari skoðunar. Trúnaðarskjöl sem Birna Einarsdóttir lagði ríkt á að halda eftir til frekari rannsóknar. Trúnaðarskjöl sem hún hvorki hirti um að endursenda mér né að afhenda mér persónulega eftir að upp úr viðræðum slitnaði. Því verður að álykta að Birna Einarsdóttir hafi haft í hyggju að halda eftir mínum trúnaðarskjölum og hafna þeim á sama tíma! Eftir mikla eftirgangsemi af minni hálfu og ótal símhringingar var mér bent á að ég gæti sjálfur nálgast trúnaðarskjölin í höfuðstöðvum bankans. Þegar ég mætti í höfuðstöðvar bankans til að endurheimta mín trúnaðarskjöl þá lágu þau frammi á biðstofu markaðsdeildar, rétt eins og hver önnur tímarit, galopin fyrir gesti og gangandi! Mér var svo stórlega misboðið að ég sendi þegar í stað formlegt erindi til Björns Björnssonar, þáverandi aðstoðarbankastjóra, og kvartaði undan ábyrgðarleysi Birnu Einarsdóttur og meðferð hennar á trúnaðargögnum. Ef allt er með felldu í fari Birnu Einarsdóttir ætti þessi dæmalausa uppákoma, sem var alfarið á ábyrgð hennar sjálfrar, að vera henni mjög í fersku minni. Hver man ekki eftir ákúrum frá sínum yfirmanni? Öllum má ljóst vera að viðskiptasiðferði Íslandsbanka, með Birnu Einarsdóttur í stafni, hefur beðið hroðalegt skipbrot. Þær grafalvarlegu spurningarnar sem hljóta að brenna á mönnum eru eftirfarandi: (1) Þar sem bankastjóra Íslandsbanka er ekki treystandi fyrir trúnaðarskjölum hverjum öðrum innan bankans er þá treystandi? (2) Ef bankastjóri Íslandsbanka er marghrjáður af minnisleysi, er hann þá hæfur til að stjórna bankanum? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Halldór 30.5.2026 Halldór Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Um laun, arðgreiðslur og skatta Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvers konar samfélag viljum við byggja með gervigreind? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Brennandi hús Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð Stefán Georgsson skrifar Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Sjá meira
Skoðun Aftur til fortíðar: Tóbaks- og nikótínvarnir Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar