Króatar tóku bronsið - unnu Ungverja létt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2012 11:39 Slavko Goluza, þjálfari Króatíu, hefur komið að öllum verðlaunum Króata á Ólympíuleikum því hann var leikmaður 1996 og 2004. Mynd/AFP
Króatar urðu í þriðja sæti í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London eftir öruggan sjö marka sigur á Íslandsbönum Ungverja, 33-26, í leiknum um bronsverðlaunin. Króatar voru fimm mörkum yfir í hálfleik og náðu mest átta marka forskoti í seinni hálfleiknum þannig að sigurinn var afar sannfærandi. Ungverjar töpuðu því báðum leikjum sínum eftir að þeir slógu íslenska liðið út í tvíframlengdum leik í átta liða úrslitunum á miðvikudaginn var. Ungverjar duttu út fyrir Svíum í undanúrslitunum en Svíar mæta Frökkum í úrslitaleiknum á eftir. Ivan Cupic var markahæstur hjá Króatíu með átta mörk, Blazenko Lackovic skoraði sjö mörk og Domagoj Duvnjak var með sex mörk. Gergely Harsányi skoraði mest fyrir Ungverja eða sjö mörk. Ungverjar héngu í Króötum fram í miðjan fyrri hálfleik þegar staðan var 7-8 fyrir Króatíu en Króatar voru 19-14 yfir í hálfleik. Króatar voru komnir 23-16 yfir eftir sjö mínútur í seinni en Ungverjar náðu muninum niður í þrjú mörk um miðjan seinni hálfleik. Nær komust þeir ekki og Króatar tryggðu sér bronsið með sannfærandi hætti. Þetta eru þriðju verðlaun Króata í handbolta karla á Ólympíuleikum en þeir urðu Ólympíumeistarar í Atlanta 1996 og í Aþenu 2004. Króatar hafa einnig unnið 4 verðlaun á Heimsmeistaramótum (1 gull og 3 silfur) og fjögur verðlaun á Evrópumeistaramótum (2 silfur og 2 brons).
Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira