Óttar Pálsson: "Óheppilegt, svo vægt sé til orða tekið“ Magnús Halldórsson skrifar 1. júní 2012 12:18 Óttar Pálsson, hrl.
Alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar hafa í vegamiklum atriðum ekki verið innleiddir í íslensk lög, og það er vægt til orða tekið óheppilegt. Þetta kom fram í erindi Óttars Pálssonar hrl. á fundi í höfuðstöðvum Price Waterhouse Coopers í morgun. Óttar, sem er meðal eigenda Logos lögmannsstofu, var meðal frummælenda á morgunverðarfundi í höfuðstöðvum Price Waterhouse Coopers í morgun, þar sem lög og reglur um endurskoðun, og ábyrgð endurskoðenda, voru til umfjöllunar. Óttar fjallaði vítt og breitt um lagalegt umhverfi endurskoðunar, og sagði meðal annars að grunnbakbeinið í vinnu endurskoðenda, það eru alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar, hefðu ekki verið innleiddir í íslensk lög nema að takmörkuðu leyti. Þetta sagði hann vera óheppilegt, svo vægt sé til orða tekið. Sagði hann ábyrgð endurskoðenda samkvæmt lögum, á þeirra áliti á reikningi, vera ótvíræða og fjallaði hann meðal annars um innlend og erlend dómafordæmi máli sínu til stuðnings. Meðal annarra frummælenda á fundinum var Vignir Rafn Gíslason, endurskoðandi hjá Price Waterhouse Coopers en hann var meðal endurskoðenda Landsbankans fyrir hrun, sem slitastjórn þess banka hefur stefnt og krafist skaðabóta. Þá hefur Vignir Rafn einnig starfað fyrir slitastjórn Kaupþings. Hann fjallaði ekki síst um stöðu íslenskra fjármálafyrirtækja árið 2007, og vitnaði til þess að samkvæmt ársreikningum allra fjármálafyrirtækja á Íslandi hefði eigið fé þeirra, að frádregnum víkjandi lánum, verið um eitt þúsund milljarðar króna og heildar eigið fé íslenskra fyrirtækja verið ríflega sjö þúsund milljarðar. Sagði hann enn fremur að misjafnar aðferðir við framsetningu á ársreikningum, svonefnd hlutdeildaraðferð og síðan aðferð þar sem eignir eru settar fram á markaðsvirði, hefðu oft dregið upp gjörólíka mynd. Þannig hefði eigið fé Exista árið 2007 verið um hundrað milljörðum minna ef ekki hefði verið notast við hlutdeildaraðferð, heldur eignir færðar til bókar á markaðsvirði. Fjallað verður nánar um þessi mál, sem til umfjöllunar voru á fundinum í morgun, í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Sjá meira