Sluppu við "Mission Impossible“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2012 06:00 Hrafnhildur Skúladóttir Á æfingu með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu.Fréttablaðið/Stefán
Íslenska kvennalandsliðið hafði heppnina með sér þegar dregið var í umspilið um laus sæti á Heimsmeistaramótinu í Serbíu sem fer fram í desember á næsta ári. Íslenska liðið lenti á móti Tékklandi, sem er eina liðið sem náði ekki að hala inn stig í milliriðlunum á EM í Serbíu. „Ég er svo kát og glöð því þetta gat ekki farið betur. Við byrjum heima og það er rosalega mikilvægt að ná góðum úrslitum í heimaleiknum," sagði Hrafnhildur Skúladóttir, fyrirliði íslenska liðsins, en leikirnir fara fram í byrjun júnímánaðar. Tékkar urðu í 12. sæti á EM í Serbíu en íslenska landsliðið lenti þar í 15. og næstsíðasta sæti. „Þetta tékkneska lið er búið að vera á rosalegri siglingu og þær eru búnar að spila alveg frábærlega á EM. Þær stóðu meðal annars í Noregi allan leikinn og hafa sýnt að þær eru búnar að taka gríðarlegum framförum. Þær voru samt klárlega lakasta liðið í efri styrkleikaflokknum," sagði Hrafnhildur. Íslenska liðið hefði nefnilega getað mætt Danmörku, Rússlandi, Spáni, Rúmeníu, Frakklandi, Þýskalandi eða Svíþjóð í þessum umspilsleikjum. „Við hefðum nánast getað verið að fara í „Mission Impossible" þannig séð því við hefðum getað lent á móti alveg skelfilegum þjóðum. Auðvitað getum við slysast til að vinna einn og einn leik á móti þessum stóru þjóðum en þegar komið er í tvo leiki í umspili er orðið ansi erfitt að slá þessar allra sterkustu þjóðir út," sagði Hrafnhildur. Íslenska liðið er búið að komast inn á stórmót undanfarin þrjú ár og á nú góða möguleika á að ná stórmóti fjórða desembermánuðinn í röð. „Við skuldum það að gera betur en í Serbíu, það er klárt," sagði Hrafnhildur að lokum.
Mest lesið „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Svíþjóð - Ísland | Allt undir á útivelli Handbolti Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Körfubolti „Hann er örugglega góður pabbi“ Handbolti Fleiri fréttir Svíþjóð - Ísland | Allt undir á útivelli „Vantar meiri leiðindi og fávitaskap frá okkur“ „Miklu betra lið en Króatía“ Norðmenn með flautuna í Malmö „Hann er örugglega góður pabbi“ „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna „Eitt besta lið í heimi“ „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Danir komnir í gang á EM EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili „Það vantaði baráttuna“ Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Valskonur sóttu sigur til Eyja í toppslagnum Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Anton og Jónas dæma mikilvægan leik hjá Alfreð Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Skýrsla Vals: Ekki aftur Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Ungverjar með magnaða endurkomu en hvorugt náði Íslandi að stigum EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina „Náðum ekki að hjálpa markvörðunum okkar nóg“ „Þeir spila hægan bolta og reyna að svæfa mann“ „Þetta er klárlega högg“ Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Sjá meira