Vilja friðlýsa 479 hektara lands SHÁ skrifar 13. október 2012 00:30 Sérstakar jarðmyndanir eru á þeim svæðum þar sem til stendur að friðlýsa.fréttablaðið/þök
Umhverfisstofnun og bæjarstjórn Garðabæjar hafa auglýst tvær tillögur að friðlýsingu svæða innan marka Garðabæjar. Svæðin eru í eigu Garðabæjar, utan Vífilsstaðahrauns sem er í eigu ríkisins, og er samanlögð stærð þeirra 479,3 hektarar. Lagt er til að eldstöðin Búrfell, hrauntröð hennar Búrfellsgjá og eystri hluti Selgjár ásamt nánasta umhverfi verði friðuð sem náttúruvætti. Svæðið er alls 323 hektarar. Verndargildi svæðisins byggir fyrst og fremst á jarðmyndunum frá nútíma sem hafa hátt vísinda-, fræðslu- og útivistargildi, auk gróðurfars. Innan svæðisins eru einnig fornminjar, svo sem Gjáarétt sem er í vesturenda Búrfellsgjár. Þá er lagt til að fjögur svæði; Garðahraun neðra og efra, Vífilsstaðahraun og Maríuhellar verði friðlýst sem fólkvangur, alls 156,3 hektarar. Markmið friðlýsingarinnar er að stofna fólkvang; útivistarsvæði í þéttbýli, þar sem jarðmyndanir, gróðurfar, fuglalíf og menningarminjar, m.a. fornar rústir eru verndaðar. Með friðlýsingunni á að efla lífsgæði í sveitarfélaginu með því að tryggja möguleika til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu í náttúrulegu umhverfi.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fleiri fréttir Geðrofslyf leysa hefbundin svefnlyf af hólmi Logandi pottur Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Sjá meira