Íslenski boltinn

Annar KR-ingur lánaður til Selfoss

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dofri á ferðinni í viðureign KR og HJK í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á dögunum.
Dofri á ferðinni í viðureign KR og HJK í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á dögunum. Mynd/Daníel
Selfyssingar hafa fengið Dofra Snorrason að láni frá Íslands- og bikarmeisturum KR í knattspyrnu. Sunnlenska.is greinir frá þessu.

Dofri er annar leikmaður KR sem er lánaður til Selfyssinga. Miðjumaðurinn Egill Jónsson leikur einnig með liðinu út tímabilið en hann kom inná sem varamaður í 1-0 tapi gegn Valsmönnum í gærkvöldi.

Dofri spilar alla jafna í stöðu hægri kantmanns en hefur einnig leyst stöðu hægri bakvarðar hjá KR-ingum. Auk Egils og Dofra hefur miðvörðurinn Hafþór Þrastarson verið lánaður til liðsins frá FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×