Íslenski boltinn

Kristján Gauti Emilsson á leið í FH

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristján Gauti Emilsson er á leið til uppeldisfélags síns FH samkvæmt áreiðanlegum heimildum íþróttadeildar.

Kristján Gauti hefur leikið með unglingaliði Liverpool undanfarin ár en fékk ekki áframhaldandi samning hjá félaginu. Kristján hefur komist að samkomulagi við FH en þess er beðið að gögn berist frá Englandi til að hægt sé að staðfesta félagaskipti. Um formsatriði á þó að vera að ræða.

Kristján Gauti hefur glímt við meiðsli undanfarnar vikur og óvíst hvenær hann verður klár í slaginn með Hafnfirðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×