Íslenski boltinn

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Fram 2-2

Guðmundur Marinó Ingvarsson á Grindavíkurvelli skrifar
Mynd/Daníel
Grindavík náði mikilvægu 2-2 jafntefli gegn Fram á heimavelli í kvöld. Kristinn Ingi Halldórsson kom Fram tvisvar yfir í leiknum en Iain James Williamson og Hafþór Ægir Vilhljálmsson jöfnuðu jafn oft. Hafþór jafnaði þegar þrjár mínútur voru eftir en allt benti til þess að Fram myndi innbyrða sanngjarnan sigur. Enn munar því sex stigum á liðunum í fallbaráttunni.

Yfirburðir Fram í fyrri hálfleik voru miklir og mátti Grindavík þakka fyrir að aðeins munaði einu marki á liðunum í hálfleik. Óskar Pétursson fór á kostum í markinu en Grindavík réð ekkert við hraða Kristins Inga Halldórssonar.

Grindavík komst mun meira inn í leikinn í seinni hálfleik og var meira jafnræði með liðunum. Eftir að Fram komst yfir öðru sinni færðu Grindvíkingar sig framar og áttu sínar bestu sóknir og uppskáru mikilvægt jöfnunarmark þegar öll sund virtustu lokuð.

Bæði lið fengu færi til að tryggja sér sigurinn en allt kom fyrir ekki og því munar enn sex stigum á liðunum. Grindavík er sem fyrr í botnsætinu nú með 7 stig, stigi á eftir Selfossi. Fram er komið með 13 stig og ljóst að spennan helst eitthvað áfram í botnbaráttunni þó önnur lið blandi sér ekki í hana úr þessu.

Þorvaldur: Áttum að klára þetta
„Mér fannst við fá nóg af færum til að klára leikinn en á meðan maður skorar ekki mörk er alltaf hætta. Það er mikilvægt að ná öðru markinu og ef við hefðum náð því hefðum við klárað leikinn en við náðum því ekki og hleyptum þeim inn í leikinn á klaufalegan hátt þegar það kemur svífandi bolti inn í teiginn sem við náum ekki að hreinsa," sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram í leikslok.

„Við eigum að skora miklu meira en eitt mark í fyrri hálfleik og svo strax í seinni hálfleik líka. Við fáum færi til að klára þá en þegar menn klára ekki færin getur það komið í bakið á manni. Við fengum stig og tökum það.

„Það er ekkert til sem heitir þægilegt í þessu. Þetta er haltu slepptu staða í deildinni. Ég hefði viljað þrjú stig en við tökum eitt. Þetta er svekkjandi þar sem við vorum töluvert betra liðið. Það er sagan okkar, liðið spilaði vel og barðist en það er grátlegt að nýta ekki þessi færi," sagði Þorvaldur að lokum.

Guðjón: Þurfum meiri trú
„Þetta voru vonbrigði. Við settum leikinn upp til að vinna en það vantaði kannski meiri ákefð í byrjun leiksins. Ef við hefðum náð að spila allan leikinn eins og við spiluðum í seinni hálfleik þá er ég viss um að við hefðum getað unnið þennan leik," sagði Guðjón Þórðarson þjálfari Grindavíkur eftir leikinn.

„Við sýndum karakter að jafna hérna í restina og ég hefði viljað sjá skotið hans Tomi hér í restina hitta ramann en ekki fara yfir slána. Við vorum nálægt því að ná öllum þremur stigunum en það gerðist ekki því miður og því er staðan óbreytt á botninum.

„Við hefðum getað verið meira undir í hálfleik, fyrri hálfleikurinn var slakur hjá okkur en engu að síður fengum við eitt besta færið í fyrri hálfleiknum. Í sjálfu sér hefðu Framarar getað sett eitt líka. Í seinni hálfleik hefðum við getað búið til betri stöður en gerum.

„Það hefði verið hræðilegt að tapa þessum leik, þá hefðum við þurft nánast kraftaverk en það kom fínn kraftur í þetta. Hafþór gerði það sem hefur oft vantað hjá okkur, hann var virkur í teignum fylgdi á eftir og kom boltanum yfir línuna.

„Eins og staðan er núna hefur ekkert breyst og þetta verður blóðug barátta alveg til loka. Ég vil meina að við eigum meira inni en það sem menn hafa verið að taka í þessar 90 mínútur en það virðist alltaf vera þannig að menn þurfa að vera komnir í einhverja dauða stöðu til að þeir stígi fastar til jarðar. Við þurfum að spila í 90 mínútur og hafa meiri trú. Ég hef talað um þetta frá því við byrjuðum í vor að menn þurfi að hafa meiri trú á sjálfum sér og félögunum í liðinu. Við sjáum að það er alveg hægt að flytja boltann og færa hann á milli manna þegar sá gállinn er á, sagði Guðjón að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×