Sundið Hörður J. Oddfríðarson skrifar 14. nóvember 2012 06:00 Jón Karl Helgason kvikmyndagerðarmaður hefur gert heimildarmynd um sund. Við fyrstu sýn hljómar það ekkert sérstaklega spennandi, en myndin er afskaplega vel heppnuð, sýnir annars vegar keppni þeirra nafna Benedikts Hjartarsonar og Benedikts Lafleur um að verða fyrstur Íslendinga að synda yfir Ermarsund og hins vegar sýnir myndin ýmis þrekvirki sem hafa verið unnin í sundi kringum Ísland í gegnum aldirnar þar sem fólk hefur átt líf sitt undir því að kunna að synda. Og það er einmitt sá vinkill sem heldur myndinni saman og skýrir hversu mikil afrek þeir Benedikt og Benedikt unnu í tilraunum sínum við að synda yfir Ermarsundið. Fyrir Sundsamband Íslands og sundhreyfinguna í landinu er þessi mynd gulls ígildi, því hún sýnir mikilvægi þess að kunna að synda, hún sýnir fegurð og drengskap sundíþróttarinnar, hún sýnir að einhverju leyti það álag sem keppnissundfólk býr við í undirbúningi fyrir keppni og hún segir sögu sundíþróttarinnar á Íslandi frá landnámsöld. Það var ekki sjálfgefið að þessar upplýsingar og þessi saga byggju áfram í minni þjóðarinnar fyrr en nú að Jón Karl og hans fólk setja hana í mynd. Fyrir það ber að þakka og halda á lofti nöfnum þess fólks sem af einskærum áhuga og elju leggst í slíka vinnu. Það er von okkar að þessi mynd, Sundið, haldi okkur Íslendingum við efnið, þannig að við týnum ekki niður sundkunnáttu okkar og gætum þess að kenna öllum börnum okkar að synda hér eftir sem hingað til. Gleymum því ekki að drukknun er önnur helsta dánarorsök vegna slysa í heiminum. Aðferðin við að minnka hættu á drukknun er að kenna sund snemma og viðhalda kunnáttunni alla ævi. Það eykur líka lýðheilsu þjóðarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Jón Karl Helgason kvikmyndagerðarmaður hefur gert heimildarmynd um sund. Við fyrstu sýn hljómar það ekkert sérstaklega spennandi, en myndin er afskaplega vel heppnuð, sýnir annars vegar keppni þeirra nafna Benedikts Hjartarsonar og Benedikts Lafleur um að verða fyrstur Íslendinga að synda yfir Ermarsund og hins vegar sýnir myndin ýmis þrekvirki sem hafa verið unnin í sundi kringum Ísland í gegnum aldirnar þar sem fólk hefur átt líf sitt undir því að kunna að synda. Og það er einmitt sá vinkill sem heldur myndinni saman og skýrir hversu mikil afrek þeir Benedikt og Benedikt unnu í tilraunum sínum við að synda yfir Ermarsundið. Fyrir Sundsamband Íslands og sundhreyfinguna í landinu er þessi mynd gulls ígildi, því hún sýnir mikilvægi þess að kunna að synda, hún sýnir fegurð og drengskap sundíþróttarinnar, hún sýnir að einhverju leyti það álag sem keppnissundfólk býr við í undirbúningi fyrir keppni og hún segir sögu sundíþróttarinnar á Íslandi frá landnámsöld. Það var ekki sjálfgefið að þessar upplýsingar og þessi saga byggju áfram í minni þjóðarinnar fyrr en nú að Jón Karl og hans fólk setja hana í mynd. Fyrir það ber að þakka og halda á lofti nöfnum þess fólks sem af einskærum áhuga og elju leggst í slíka vinnu. Það er von okkar að þessi mynd, Sundið, haldi okkur Íslendingum við efnið, þannig að við týnum ekki niður sundkunnáttu okkar og gætum þess að kenna öllum börnum okkar að synda hér eftir sem hingað til. Gleymum því ekki að drukknun er önnur helsta dánarorsök vegna slysa í heiminum. Aðferðin við að minnka hættu á drukknun er að kenna sund snemma og viðhalda kunnáttunni alla ævi. Það eykur líka lýðheilsu þjóðarinnar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar