Jafntefli gæti fært FH-ingum titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. september 2012 11:00 Hemir Guðjónsson, þjálfari FH-inga, þarf ekki að hafa miklar áhyggjur enda er staða liðsins frábær á toppi deildarinnar. Mynd/Stefán
Pepsi-deild karla fer aftur af stað á morgun eftir þrettán daga landsleikjahlé og það gæti farið svo að FH-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn og Grindavík félli þótt enn væru þrjár umferðir eftir af deildinni. FH-ingar eru með tíu stiga forskot á KR-inga og KR-liðið verður búið að spila sinn leik á móti Breiðabliki þegar kemur að stórleik FH og Stjörnunnar klukkan 19.15 á sunnudagskvöldið. Takist Vesturbæingum ekki að vinna Blika þá verður það ljóst við fyrsta flaut á teppinu í Garðabæ að FH-liðinu nægir eitt stig til að gulltryggja sjötta Íslandsmeistaratitilinn á átta árum. FH-liðið hefur unnið þrjá leiki í röð án þess að fá á sig mark og alls náð í 21 af 24 stigum í boði frá miðjum júlímánuði og það þykir flestum aðeins vera tímaspursmál hvenær FH-ingar endurheimta Íslandsbikarinn. Grindvíkingar eru aftur á móti í afar slæmum málum á botni deildarinnar og ekkert nema sigur á móti ÍBV í Eyjum kemur í veg fyrir að liðið falli úr deildinni. Grindavík er tíu stigum á eftir Fram sem situr í síðasta örugga sætinu eins og er. Tapi Fram og nái Grindavík í stig þá munar níu stigum þegar níu stig eru eftir í pottinum en markatala Grindavíkurliðsins er miklu verri (20 mörk) og liðið væri því í raun fallið. Það verður líka hart barist um Evrópusætin enda munar aðeins þremur stigum á liðunum í 3. til 6. sæti (Stjarnan 29, ÍBV 28, ÍA 28, Breiðablik 26). Bikarmeistaratitill KR-inga þýðir að liðin í 3. og 4. sæti komast í Evrópukeppnina næsta sumar. Þá má ekki gleyma fallbaráttunni því slæm staða Grindvíkinga breytir því ekki að það fer annað lið líka niður í 1. deild og þar sem Framarar og Selfyssingar voru á miklu flugi fyrir frí þá mega liðin fyrir ofan þau vara sig. Tvö þeirra, Keflavík (tekur á móti Fram) og Fylkir (tekur á móti Selfossi) dragast fyrir alvöru niður í fallbaráttuna með tapi í þessum leikjum.- óójLeikir morgundagsins: 16.00 ÍBV - Grindavík - Hásteinsvöllur 17.00 ÍA - Valur- Akranesvöllur 17.00 Keflavík - Fram - Nettóvöllurinn 17.00 Fylkir - Selfoss - Fylkisvöllur 17.00 KR - Breiðablik - KR-völlur 19.15 Stjarnan - FH - Samsung völlurinn
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira