Vopnfirðingar óttast um sitt heldra fólk 23. júlí 2012 04:00 Vopnfirðingar eru uggandi þar sem málefni um búsetu aldraðra og framtíð sjúkraliða eru í lausu lofti þessa dagana.
Starfsmenn á hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði eru uggandi en yfirmenn Heilbrigðistofnunar Austurlands tilkynntu starfsmönnum hjúkrunarheimilisins, á fundi sem boðað var til 26. júní síðastliðinn, að þeim yrði sagt upp. Þetta segir Steingerður Steingrímsdóttir, formaður stjórnar Austur-landsdeildar Sjúkraliðafélags Íslands. Ástæðan er sú að breyta á rekstrarfyrirkomulagi Sundabúðar sem í framtíðinni mun einungis bjóða upp á heimahjúkrun ef af þessum áformum verður. Tólf sjúkraliðar starfa í Sundabúð. ?Við höfum ekkert heyrt í þeim síðan þetta var tilkynnt,? segir Steingerður. ?Það er náttúrulega sárt að missa þessi störf en sárar svíður okkur undan því að missa þessa þjónustu úr byggðarlaginu. Það er alltaf sorglegt þegar verið er að skerða þjónustuna við þá sem síst eiga það skilið,? segir hún. Stjórn Austurlandsdeildar sendi frá sér ályktun nýverið þar sem þessum áformum er mótmælt og skorað á Heilbrigðisstofnun Austurlands, Velferðarráðuneytið og sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps að búa svo um hnútana að íbúar á hjúkrunardeild Sundabúðar þurfi ekki enn einu sinni að búa við þau ótryggu búsetuskilyrði sem af þessu hljótast. Ellefu rúm eru á hjúkrunardeildinni. Þorsteinn Steinsson, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps, segir málið leggjast þungt á íbúa svæðisins. ?Við höfum náttúrulega bullandi áhyggjur af því hvernig þessu reiðir af og viljum númer eitt, tvö og þrjú að þessi þjónusta verði sem allra best á svæðinu. Það er óþolandi fyrir þá sem þiggja þjónustuna og svo fyrir starfsfólkið að búa við þessa óvissu. En það er verið að vinna að úrlausn mála í samvinnu Velferðarráðuneytis, Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Vopnafjarðarhrepps.? Vopnafjarðarhreppur hefur lýst yfir áhyggjum af því ef skerða á þjónustu við aldraða sem þurfi umönnunar við og af því hvað verði um starfsmenn. Engu að síður segir í fundargerð hreppsnefndar frá 5. júlí síðastliðnum að nauðsynlegt sé að skoða möguleika á breyttu rekstrarfyrirkomulagi hjúkrunarheimilisins. Þess er þó krafist að sú breyting feli ekki í sér lakari þjónustu.jse@frettabladid.is
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira