Þarf vefsíu gegn barnaklámi 23. júlí 2012 05:00
Lögregla telur mikilvægt að Ísland gangi inn í samstarf um netvarnir til að sporna gegn dreifingu myndefnis sem sýnir börn á kynferðislegan hátt. Samkvæmt nýjum lögum liggur allt að tveggja ára fangelsi við því að skoða slíkt efni á netinu. Norsk vefsía stöðvar þúsundir heimsókna á barnaklámssíður þar í landi á hverjum degi. Í frétt Aftenposten segir frá síunni, sem gengur undir nafninu CSAADF (Child Sexual Abuse Anti Distribution Filter), en hún er þróuð af norsku lögreglunni og fjarskiptafyrirtækinu Telenor. Sían gengur á gagnagrunni um eitt þúsund vefsíðna sem skilgreindar hafa verið sem ólöglegar. Reyni netnotandi að fara inn á síðuna fær hann upp skilaboð um að síðan sem hann hafi ætlað inn á innihaldi ólöglegt efni. Þessi skilaboð koma upp um 15 þúsund sinnum á sólarhring hjá notendum í Noregi. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisafbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Fréttablaðið að íslensk yfirvöld þekki umrætt kerfi og mikilvægt sé að það verði tekið upp hér á landi. "Við vitum af þessu og höfum lengi talið þörf á að komast inn í samstarfið. Þetta er liður í því að hamla því að slíkt efni streymi inn á einkatölvur." Sían er ekki ætluð til þess að klófesta þá sem lenda í henni þar sem hún geymir hvorki IP-tölur eða aðrar upplýsingar viðkomandi. Markmiðið er að stöðva dreifingu en að auki hefur sían þau áhrif að trufla forrit sem eigendur síðnanna nota til að innheimta gjald af notendum. Frá árinu 2009 hefur sían staðið öllum 190 aðildarríkjum Interpol til boða, en aðeins átta þeirra hafa þegið boðið. Þar á meðal eru Danmörk, Svíþjóð og Finnland, en ekki Ísland. Björgvin segir að lögreglan hafi nýlega hafið samstarf við Europol um að greina myndefni af ofbeldi gegn börnum til að efla fjölþjóðlega gagnagrunna, þar á meðal CSAADF. Málið hafi verið rætt innan lögreglunnar en sé nú á borði innanríkisráðuneytisins. Frá ráðuneytinu bárust þau svör að í frumvarpi um lénamál séu ákvæði sem breyti lagarammanum að því leyti að Póst- og fjarskiptastofnun fái heimild til að loka ákveðnum lénum og vefsvæðum. Það ætti að vera grundvöllur fyrir beitingu úrræða á borð við CSAADF síunnar hér á landi. Ekki tókst að koma frumvarpinu í gegnum þingið fyrir þinglok en það verður væntanlega lagt aftur fyrir þingið eftir sumarfrí.- þj
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Umdeildur sýnkudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira