Íslenski boltinn

Tímabilið búið hjá Þóri | Á leið í aðgerð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir Hannesson mun ekki spila með Fylkismönnum í sumar en hann þarf að fara í aðgerð vegna þeirra meiðsla sem hafa haldið honum á hliðarlínunni allt tímabilið.

Þórir meiddist á undirbúningstímabilinu og fengu því Fylkismenn David Elebert til liðs við félagið. Þórir hefur þó undanfarin ár verið lykilmaður í vörn Árbæinga og því áfallið nokkuð fyrir Fylki.

Fylkir vann í kvöld 2-0 sigur á Keflavík og situr í fimmta sæti deildarinnar með nítján stig, fimm stigum frá toppliði KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×