Viðskipti innlent

FME fjallar um stöðu lífeyrissjóðanna

Fjármálaeftirlitið boðar til blaðamannafundar klukkan 13.15 í dag, þar sem farið verður yfir stöðu lífeyrissjóðanna.

Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum Þinghóli í húsnæði Fjármálaeftirlitsins á 3. hæð í turnbyggingunni við Höfðatorg en heimilisfangið er Höfðatún 2.

Á fundinum munu Unnur Gunnarsdóttir, settur forstjóri Fjármálaeftirlitsins, Halldóra E. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri eftirlitssviðs Fjármálaeftirlitsins og Björn Z. Ásgrímsson, sérfræðingur á greiningasviði Fjármálaeftirlitsins, fjalla um stöðu lífeyrissjóðanna 2011.

Fjallað verður almennt um lífeyrismarkaðinn 2011 og farið sérstaklega yfir stöðu fimm stærstu lífeyrissjóðanna, að því er segir í fréttatilkynningu frá FME. Enn fremur verður rætt um tryggingafræðilega stöðu íslenskra lífeyrissjóða og stöðu þeirra í alþjóðlegum samanburði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×