Íslenski boltinn

Alfreð: Hef aldrei verið í betra formi

Alfreð Finnbogason hefur farið á kostum með Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni. Skorar og leggur upp mörk í nánast hverjum leik. Þeir eru því margir sem vilja sjá hann í byrjunarliðinu gegn Færeyingum í kvöld.

"Ég er í besta formi sem ég hef verið í. Eina sem maður getur gert er að standa sig og ég er alltaf klár ef kallið kemur frá Íslandi," sagði Alfreð aðspurður um hvort hann væri bjartsýnn á að fá sæti í byrjunarliðinu.

"Þetta leggst vel í mig enda langt síðan við spiluðum á heimavelli og fyrsti heimaleikurinn undir stjórn Lars. Andstæðingurinn er kannski ekki að sá mest spennandi fyrir áhorfendur en þeir fá samt að sjá nýtt og spennandi íslenskt landslið," sagði Alfreð en er ekki kominn tími á að Íslendingar fari að koma á völlinn til þess að sjá íslenska landsliðið en ekki stjörnur annarra liða?

"Algjörlega. Það eiga ekki bara að þurfa að vera olíubornir Portúgalar á vellinum svo að fólk komi. Það er talað um að vanti stemningu en við verðum að mynda hana sjálfir og reyna að skemmta fólkinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×